
Sérfræðingur í stafrænum samskiptum og miðlun
Hefur þú brennandi áhuga á miðlun, upplýsingagjöf og þróun stafrænnar þjónustu?
Gildi lífeyrissjóður óskar eftir að ráða sérfræðing í stafrænum samskiptum og miðlun til að styrkja stafræna upplifun og upplýsingamiðlun sjóðsins.
Við leitum að einstaklingi með reynslu af markaðs- og samskiptamálum og þróun vefmiðla sem hefur áhuga á að taka þátt í að þróa framtíð stafrænna samskipta og upplýsingamiðlunar hjá einum stærsta lífeyrissjóði landsins. Starfsmaður heyrir undir Samskipta – og markaðsmál sem er hluti af Rekstrarsviði og mun einnig vinna í nánu samstarfi við aðrar einingar sjóðsins.
Helstu verkefni:
- Þróa og bæta upplýsingagjöf til sjóðfélaga.
- Þátttaka í þróun á vefsvæði og samfélagsmiðlum sjóðsins.
- Skipulagning, framleiðsla og miðlun efnis meðal annars á stafrænum miðlum.
- Þróun stafrænnar framsetningar og notendaupplifunar.
- Umsjón með stafrænu myndefni og einfaldri myndbandsvinnslu.
- Greining og eftirfylgni með árangri stafrænnar miðlunar og markaðsaðgerða.
- Þátttaka í þróun markaðs- og kynningarmála sjóðsins.
Hæfniskröfur
- Reynsla af vefumsýslu og samskiptamiðlun.
- Reynsla af gerð stafræns efnis, framsetningu og myndefnisvinnslu.
- Þekking á verkfærum eins og HubSpot, Figma (eða Adobe Creative Suite), Google Analytics / GA4 og CMS kerfum er kostur.
- Gott auga fyrir framsetningu, notendaupplifun og stafrænum samskiptum.
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar.
- Frumkvæði og drifkraftur.
- Sjálfstæði og ögun í vinnubrögðum.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta ásamt hæfni til að skrifa skýran, vandaðan og aðgengilegan texta.
- Menntun sem nýtist í starfi.
Gildi er einn af stærstu lífeyrissjóðum landsins með um 60 þúsund greiðandi sjóðfélaga og um 33 þúsund sjóðfélaga sem fá greiddan lífeyri frá sjóðnum. Um 285 þúsund einstaklingar eiga réttindi hjá sjóðnum. Eignir Gildis nema yfir 1.200 milljörðum króna og sjóðurinn gegnir leiðandi hlutverki á íslenskum fjármálamarkaði.
Við bjóðum krefjandi verkefni, gott starfsumhverfi og raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á þróun stafrænnar þjónustu trausts lífeyrissjóðs.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Umsóknarfrestur um starfið er til og með 4. júní 2026.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Garðar Óli Ágústsson ([email protected]) og Auður Bjarnadóttir ([email protected]) hjá Vinnvinn.
Íslenska
Enska






