66°North
66°North
66°North

Markaðsfulltrúi 66°Norður

66°Norður leitar að öflugum markaðsfulltrúa með áherslu á Ísland sem hefur næmt auga fyrir vörumerkjauppbyggingu, skilur þarfir markhópa og getur hrint hugmyndum í framkvæmd. Viðkomandi vinnur markvisst að því að auka sýnileika og styrkja stöðu 66°Norður á íslenskum markaði með árangursdrifnum aðgerðum.

Starfið felur í sér ábyrgð á skipulagningu og framkvæmd markaðsaðgerða á Íslandi.

Í hlutverkinu felst tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á vöxt og ímynd eins þekktasta vörumerkis Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greining og kortlagning sóknartækifæra á íslenskum markaði.
  • Þróun og innleiðing markaðsaðgerða til að ná til nýrra markhópa og markaðssvæða.
  • Skipulagning, framkvæmd og eftirfylgni markaðsverkefna, frá hugmynd að framkvæmd.
  • Mótun og aðlögun efnis og skilaboða að íslenskum markaði.
  • Þróun efnis og stafrænnar sýnileikauppbyggingar með áherslu á leitarvélarbestun (SEO), samfélagsmiðla og árangursmælingar.
  • Virk þátttaka í samfélaginu og uppbygging tengsla við viðskiptavini og hagaðila.
  • Öflugt samstarf við verslanir og fyrirtækjasvið til að hámarka árangur og styðja við tekjuvöxt.
  • Greining á árangri aðgerða og stöðug umbótavinna.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur reynslu af markaðsstörfum eða vörumerkjauppbyggingu.
  • Er drífandi, hugmyndaríkur og sér tækifæri þar sem aðrir sjá áskoranir.
  • Getur unnið sjálfstætt og tekið ábyrgð á verkefnum frá hugmynd til framkvæmdar.
  • Er skipulagður og nær að halda utan um mörg verkefni í senn.
  • Hefur framúrskarandi samskiptahæfni og á auðvelt með að byggja upp tengsl.
  • Hefur sterkan skilning á markaðssetningu, markhópum og neytendahegðun.
  • Hefur góðan skilning á stafrænum markaðsmálum, leitarvélarbestun (SEO) og hvernig auka má sýnileika vörumerkis á netinu.
  • Er gagnadrifinn í nálgun sinni og nýtir mælingar, innsýn og markaðsgögn til að þróa markvissar aðgerðir.
  • Talar og skrifar íslensku og ensku reiprennandi.
Auglýsing birt18. maí 2026
Umsóknarfrestur31. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Miðhraun 11, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar