

Marketing Associate / Markaðsfulltrúi
The Reykjavik EDITION leitar að Markaðsfulltrúa við fjölbreytt verkefni í markaðsdeild The Reykjavik EDITION.
The Reykjavik EDITION er fyrsta fimm stjörnu hótelið í Reykjavík. Hótelið býður upp á veitingaþjónustu, spa, þakbar, kaffihús og viðburðarhald. Hótelið tilheyrir EDITION vörumerkinu innan Marriott International, sem er stærsta alþjóðlega hótelkeðja í heimi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðstoða forstöðumann markaðsmála og upplýsingasviðs
Umsjón með verkefnum tengdum stafrænum miðlum, setja efni á vefsíður og Facebook
Textavinnsla fyrir fréttabréf, vefsíður og fleira
Umsjón og vinnsla á markaðsefni innanhús
Hönnunarvinna fyrir markaðsefni
Aðstoð við viðburði
Aðstoð við myndatökur og efnisgerð af viðburðum fyrir stafræna miðla
Ýmis önnur fjölbreytt og spennandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
Framúrskarandi þjónustulund og lausnamiðaður hugsunarháttur
Þekking og reynsla af samfélagsmiðlum og stafrænni markaðssetningu
Gott auga fyrir smáatriðum og hönnun
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Afbragðs íslensku- og enskukunnátta
Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi æskileg
Reynsla/þekking á Adobe Indesign og Canva
Fríðindi í starfi
Spennandi tækifæri til að vera hluti af alþjóðlegri hótelkeðju með óteljandi tækifærum.
Afsláttarkjör á gistingu á Marriott hótelum um heim alla.
Kjörinn vettvangur fyrir rétta einstaklinginn til að láta ljós sitt skína. Mörg tækifæri til að vaxa í starfi, bæði innan hótelsins sem og á alþjóðavettvangi.
Umsóknarfrestur er til og með 15 Júní næstkomandi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ninna Hafliðadóttir, Forstöðumaður Markaðsdeildar, [email protected]
Íslenska
Enska







