Íslandshótel
Íslandshótel
Íslandshótel

Forstöðumaður vörumerkja og markaðsmála

Um er að ræða starf innan sölu- og markaðssviðs þar sem viðkomandi hefur yfirumsjón með markaðsdeild og samhæfingu verkefna á sviði vörumerkja, markaðsmála, efnis og stafrænnar miðlunar.

Forstöðumaður vörumerkja og markaðsmála tryggir góða yfirsýn, skýra forgangsröðun, markvissa framkvæmd og samræmi í framsetningu vörumerkja Íslandshótela.

Starfið felur í sér náið samstarf við stjórnendur, hótel, stoðdeildir og ytri samstarfsaðila.

Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með öflugu teymi að áframhaldandi þróun markaðsstarfs og vörumerkja Íslandshótela.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Stjórnun og samhæfing verkefna markaðsdeildar
  • Yfirumsjón með markaðsáætlun og forgangsröðun
  • Ábyrgð á samræmi í vörumerkjum, markaðsefni og helstu snertiflötum
  • Samhæfing herferða, efnisgerðar og stafrænnar miðlunar
  • Stuðningur við markaðsstjóra, vörumerkjastjóra og aðra sérfræðinga
  • Samstarf við hótel, sölu, tekjustýringu, dreifingu og stoðdeildir
  • Eftirfylgni með árangri, mælingum og umbótum

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla á sviði markaðsmála, vörumerkja og stafrænna miðla
  • Reynsla af stjórnun og teymisvinnu
  • Góð yfirsýn, frumkvæði og skipulögð vinnubrögð
  • Mjög góð samskiptafærni á íslensku og ensku

Hlutverk Íslandshótela er einstök gestrisni

Gildin okkar eru:

Samvinna - Fagmennska - Hugrekki - Umhyggja

Frekari upplýsingar veitir Ásmundur Sævarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs, [email protected] Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2026.

Í gegnum tvö öflug vörumerki, bjóða Íslandshótel gæða hótel hringinn í kringum landið í nálægð við stórbrotið landslag og einstakar náttúruperlur. Innan Fosshótel og Hótel Reykjavík vörumerkja eru 17 hótel með rétt tæplega 2.000 herbergi. Fosshótel eru staðsett hringinn í kringum landið og Hótel Reykjavík með 4 stjörnu hótel í Reykjavík fyrir ferðamenn og ráðstefnugesti sem vilja njóta glæsilegar aðstöðu og framúrskarandi þjónustu.

Lærðu meira um Íslandshótel

Auglýsing birt28. maí 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hallgerðargata 13, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.HugmyndaauðgiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar