
Framkvæmdastjóri Viðskiptasviðs
Ísland Duty Free leitar að Framkvæmdastjóra viðskiptasviðs. Hlutverkið ber ábyrgð á rekstrarlegum árangri sviðsins, en undir það heyra vöruflokkastýring, markaðsmál, aðfangakeðja og birgðastýring. Starfið felur í sér stefnumótun og yfirumsjón með að hámarka arðsemi vöruflokka, móta framtíðar vöruúrval og tryggja viðskiptavinum okkar framúrskarandi upplifun.
Við leitum að drifnum leiðtoga sem starfar í nánu samstarfi við söluteymi, hvetur sitt fólk til árangurs og styður við sterka vinnustaðamenningu sem byggir á trausti og valdeflingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróa og innleiða stefnumótandi aðgerðaáætlanir til samfelldra umbóta og hámarks arðsemi vöruflokka.
- Ábyrgð á arðsemi vöruflokka og hámörkun tekjumöguleika, ásamt því að tryggja rétta lagerstöðu og aðlaðandi framsetningu varnings í verslunum.
- Skipuleggja og framkvæma viðburði í árlegu viðburðadagatali, þar á meðal herferðir, tilboð og vörukynningar.
- Greina markaðsþróun og fínstilla vöruframboð í takt við þarfir rekstrarins.
- Koma á og viðhalda sterkum samböndum við birgja, þar á meðal afhendingarskilmála, markaðsaðgerðir og semja um verð.
- Styðja, þjálfa og efla vöruflokkastjóra og teymismeðlimi til að ná settum markmiðum.
- Yfirumsjón með breytingum og endurnýjun á verslunarrýmum til að bæta upplifun viðskiptavina.
- Tryggja skjóta og kostnaðarmeðvitaða ákvarðanatöku í takt við markmið fyrirtækisins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun (B.A./B.Sc.) eða sambærileg hæfni sem nýtist í starfi.
- Að minnsta kosti 2ja ára stjórnunarreynsla úr ferðaverslun (Travel Retail) eða skyldum geira er æskileg.
- Viðamikil þekking á vörustýringu og vöruúrvalsmótun er mikill kostur.
- Framúrskarandi hæfni í ensku í ræðu og riti (viðbótartungumál eru kostur).
- Reynsla og hæfni í að setja og fylgja eftir lykilmælikvörðum ásamt sterkri ákvarðanatökugetu.
- Seigla undir álagi og hæfni til að leiða teymi í gegnum breytingar.
- Framúrskarandi samskiptahæfni.
- Jákvæðni og hæfni til að skapa hvetjandi, valdeflandi og starfsþróunarsinnaða vinnustaðamenningu.
Auglýsing birt27. maí 2026
Umsóknarfrestur12. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Blikavöllur 5, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar




