
Reitir
Reitir er leiðandi fyrirtæki í fasteignaþróun, umsýslu og eignarhaldi atvinnuhúsnæðis á Íslandi. Við mótum framtíðina með sjálfbærri uppbyggingu og sterkum langtímasamböndum sem skapa ávinning fyrir leigutaka, fyrirtækið og samfélagið. Á sama tíma hlúum við að sögufrægum byggingum og stöndum vörð um íslenskan menningararf.
Hjá Reitum vinnur fjölbreyttur hópur sérfræðinga að því að þróa lífleg borgarhverfi og tryggja vandaða umsjón með eignum. Í starfi okkar leggjum við áherslu á vellíðan, jafnrétti og tækifæri til starfsþróunar – allt í takt við gildin okkar: jákvæðni, fagmennska og samvinna.
Reitir er almenningshlutafélag skráð í Kauphöll Íslands og byggir á traustri arfleifð með skýra framtíðarsýn.

Sérfræðingur í markaðsmálum og samskiptum
Reitir óska eftir að ráða til sín sérfræðing á sviði markaðsmála og samskipta. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi mun stýra verkefnum, vinna náið með ólíkum teymum innan félagsins og eiga í samstarfi við ýmsa utanaðkomandi aðila.
Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á markaðs- og samskiptamálum og getu til að leiða verkefni frá upphafi til enda. Viðkomandi þarf að geta unnið með gögn með markvissum hætti og taka þátt í að útbúa efni fyrir hina ýmsu miðla félagsins.
Starfið tilheyrir skrifstofu forstjóra og býður upp á spennandi tækifæri til að starfa þvert á félagið, læra og þroskast í starfi og hafa áhrif á markaðs- og samskiptaverkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjórnun fjölbreyttra verkefna á sviði markaðsmála og samskipta
- Framleiðsla efnis og textaskrif
- Umsjón með stafrænum miðlum
- Samskipti við ýmsa verktaka og þjónustuaðila
- Greining, framsetning og utanumhald gagna um samskipti, markaðsmál, samfélagsmiðla, vefmál, auglýsingaherferðir og fleira
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Starfsreynsla í tengdum verkefnum er kostur
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð færni í textaskrifum, útbúa efni á íslensku í kynningar, fréttatilkynningar og fleira.
- Góð almenn tæknikunnátta og áhugi á að tileinka sér nýja tækni
- Greining og framsetning gagna og upplýsinga
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Lausnamiðuð hugsun og frumkvæði
- Góð kunnátta í íslensku og ensku
- Áhugi eða reynsla af markaðsmálum og samskiptum
Auglýsing birt1. júní 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kringlan 4-12, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Sales Engineer
JBT Marel

Marketing Associate / Markaðsfulltrúi
The Reykjavik EDITION

Sérfræðingur í stafrænum samskiptum og miðlun
Gildi

Markaðssérfræðingur
IKEA

Sölu- og verkefnastjóri
Víbrur ehf.

Vörumerkja- og verslunarfulltrúi (hlutastarf)
Dropi ehf

Head of Growth
Cycle.io

Verkefnastjóri á alþjóðaskrifstofu LHÍ
Listaháskóli Íslands

Growth Marketing Specialist
Solid Clouds