
IKEA
Í dag starfa um 450 manns hjá IKEA á Íslandi, í lifandi alþjóðlegu umhverfi.
Þessi stóri samheldni hópur vinnur daglega að framgangi hugmyndafræði IKEA: „Að gera daglegt líf þægilegra fyrir sem flesta“.
Fjölbreytni er lykill að velgengni. Hjá IKEA, fögnum við öllum víddum fjölbreytileikans. Við leggjum áherslu á að skapa vinnuumhverfi þar sem öll eru velkomin, virt, studd og vel metin, sama hver þau eru eða hvaðan þau koma. Við erum fullviss um að sérstaða allra einstaklinga gerir IKEA betri.
Hér í IKEA leggjum við mikla áherslu á jákvæð samskipti á vinnustað og teljum sveigjanleika í starfi og samræmi milli vinnu og einkalífs vera mikilvægan þátt í starfsánægju.
Starfsemi fyrirtækisins býður upp á skapandi og skemmtileg störf og mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi – með jákvæðni að leiðarljósi.

Markaðssérfræðingur
Við leitum að einstaklingi í öflugt markaðsteymi IKEA á Íslandi. Viðkomandi þarf að hafa sterkt auga fyrir hönnun og brenna fyrir að skapa gott efni og koma góðum hugmyndum í framkvæmd. Góð færni í grafískri hönnun og gerð myndbanda fyrir samfélagsmiðla er nauðsynleg. Ráðningin er frá ágúst til eins árs, með möguleika á framlengingu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með innri og ytri markaðssetningu
- Samfélagsmiðlar; framleiðsla efnis og eftirvinnslu
- Hönnun auglýsingaefnis og uppsetning
- Almenn verkefnastjórnun
- Samskipti við auglýsinga- og birtingastofu
- Þátttaka í skipulagningu viðburða
- Innsetning og ritstýring efnis fyrir samfélagsmiðla
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af markaðsmálum, verkefnastjórnun og grafískri hönnun
- Reynsla af umsjón samfélagsmiðla er kostur
- Gott auga fyrir smáatriðum og hönnun
- Frábær samskiptafærni og hugmyndaauðgi
- Áreiðanleiki, skipulagshæfileikar, frumkvæði, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, bæði töluð og rituð
Fríðindi í starfi
- Samgöngustyrkur fyrir þá sem nýta sér vistvænan og heilsusamlegan samgöngumáta til og frá vinnu.
- Ýmsir viðburðir á vegum fyrirtækisins ásamt virku starfsmannafélagi sem stendur fyrir reglulegum viðburðum.
- Aðgengi að sumarbústað til einkanota.
- Niðurgreiddur heilsusamlegur matur með vegan valkosti.
- Ávextir og hafragrautur í boði.
- Heilsueflingarstyrkur ásamt frírri heilsufarsskoðun og velferðarþjónustu frá utanaðkomandi fagaðila. Hressandi morgunleikfimi tvisvar í viku.
- Aðgengi að námskeiðum og fræðslu til að styrkja persónulega hæfni.
- Skapandi og skemmtileg störf með mikla möguleika á að þróast og vaxa í starfi.
- Skemmtilegir vinnufélagar.
- Afsláttur af IKEA vörum.
Auglýsing birt28. maí 2026
Umsóknarfrestur10. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kauptún 4, 210 Garðabær
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (7)

Starfsmaður í netverslun S4S
S4S Netverslun - Skór.is - AIR.is - Ellingsen.is

Vörumerkja- og verslunarfulltrúi (hlutastarf)
Dropi ehf

Head of Growth
Cycle.io

Hugmynd að framtíðarstarfi?
ENNEMM

Sérfræðingur í stafrænum samskiptum og miðlun
Gildi

Markaðsfulltrúi 66°Norður
66°North

Growth Marketing Specialist
Solid Clouds