
Bananar
Bananar ehf. er stærsta innflutnings- og dreifingarfyrirtæki landsins í ávöxtum og grænmeti og þjónar stórum hópi viðskiptavina, meðal annars verslunum, veitingahúsum, sjúkrahúsum, skólum, leikskólum og mötuneytum.
Bananar leggja sérstaka áherslu á að uppfylla þarfir og kröfur viðskiptavina sinna um gæði, sanngjörn verð, fjölbreytt vöruúrval og framúrskarandi þjónustu.
Með þetta leiðarljós í forgrunni beina Bananar viðskiptum sínum til framleiðenda í löndum nær og fjær, þar sem uppskera á ávöxtum og grænmeti er fremst á hverjum tíma. Vörur koma til landsins vikulega með skipi og daglega með flugi. Íslenskt grænmeti berst til okkar daglega.
Ávextir og grænmeti verða sífellt mikilvægari þáttur í daglegri neyslu Íslendinga og er það sýn Banana að vera „Hjartað í lýðheilsu Íslendinga“ og með því að leggja sitt að mörkum til þess að auka heilbrigði og hamingju íslensku þjóðarinnar.
Fyrirtækið hefur á að skipa fjölbreyttum og fjölþjóðlegum starfsmannahópi en hjá okkur starfa að jafnaði 105 starfsmenn, með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu.
Allt frá innkaupum til dreifingar leggur starfsfólk Banana sig fram við að koma hágæða ávöxtum og grænmeti til verslana og fyrirtækja um land allt.
Markmið Banana er að vera eftirsóknarverður vinnustaður, skipaður vel þjálfuðu, stoltu og ánægðu starfsfólki. Við leggjum ríka áherslu á jákvæða vinnustaðamenningu sem einkennist af trausti, virðingu og samvinnu heilt yfir.
Gildi fyrirtækisins spila stóran sess í áherslum og stefnu mannauðsmála og eru kjarninn í öllu sem við framkvæmum, hugarfari okkar og samskiptum á vinnustaðnum, hvort sem um ræðir samstarfsfélaga, viðskiptavini eða birgja.
Heiðarleiki | Hamingja | Hugrekki | Heilbrigði

Sölustjóri á veitingasviði
Bananar leita að öflugum sölustjóra til að leiða sölu og vöxt á veitingasviði fyrirtækisins og taka sæti í framkvæmdastjórn. Veitingasvið Banana þjónar veitingastöðum, hótelum, mötuneytum, stóreldhúsum og öðrum kröfuhörðum viðskiptavinum um allt land. Viðskiptavinir sviðsins treysta á gæði, áreiðanleika, faglega þjónustu og öruggt vöruframboð.
Um er að ræða krefjandi og spennandi forystuhlutverk þar sem megináhersla er á að byggja upp öfluga söludeild, sækja ný viðskipti, styrkja tengsl við núverandi viðskiptavini og þróa veitingasviðið í markvissa, árangursdrifna og vaxandi sölueiningu með skýr og mælanleg markmið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stefnumótun og uppbygging veitingasviðs í takt við markmið fyrirtækisins
- Rekstrar- og afkomuábyrgð veitingasviðs
- Efling núverandi viðskiptasambanda og öflun nýrra viðskiptavina
- Uppbygging, stjórnun og þjálfun söluteymis
- Umsjón með lykilviðskiptasamböndum, reglulegar heimsóknir til viðskiptavina um land allt og markviss eftirfylgni
- Setning, innleiðing og eftirfylgni mælanlegra sölumarkmiða og lykilmælikvarða
- Náið samstarf við innkaup og vörustjórnun til að tryggja framboð, gæði og hagkvæmni
- Virk þátttaka í stefnumótun fyrirtækisins sem hluti af framkvæmdastjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
- Farsæl reynsla af sölu- eða viðskiptastjórnun
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Sterk leiðtogahæfni og farsæl reynsla af því að leiða teymi
- Reynsla af sölu og uppbyggingu langtímaviðskiptasambanda
- Reynsla af samningagerð
- Greinandi hugsun og gott vald á tölulegum upplýsingum og afkomugreiningu
- Reynsla af KPI-drifnum söluárangri og þekking á CRM-kerfum er kostur
- Frumkvæði, drifkraftur og lipurð í mannlegum samskiptum
- Þekking á HORECA-markaðnum er kostur
- Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt26. júní 2026
Umsóknarfrestur5. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Korngarðar 1, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
ÁætlanagerðFagmennskaGreiningarfærniLeiðtogahæfniMannleg samskiptiMetnaðurSamningagerðSölumennskaStarfsmannahaldStefnumótunVerkefnastjórnunViðskiptasamböndÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri/Sérfræðingur í markaðsmálum og greiningu
Ístex - Lopi

Viðskiptaþróunarstjóri
Klasi

Sölustjóri
Hagar miðlar

Viðskiptastjóri - Erlendir markaðir
Avis og Budget

Sölustjóri
Hyatt Centric Reykjavík

Sérfræðingur í fyrirtækjalánum – Iðnaður, verslun og þjónusta
Landsbankinn

Viðskiptastjóri hjá OK
OK

Sölustjóri Bara tala
Bara tala

Tæknilegur söluráðgjafi
Málmsteypan

Markaðsfulltrúi
Bragðlaukar

Sölustjóri (Sales Manager)
Wolt

Business Development Manager — Iceland
50skills