
Sölustjóri (Sales Manager)
Ert þú drifinn í sölustörfum, brennur fyrir rekstri og vexti fyrirtækja og vilt bera aukna ábyrgð í starfi? Hjá Wolt leitum við að sölustjóra sem vinnur markvisst og skipulega að því að breyta tækifærum í undirritaða samstarfssamninga.
Markmið Wolt er að nýta tækni til að betrumbæta borgina sem við búum í. Frá stofnun árið 2014 höfum við stækkað í yfir 30 lönd og þjónustum í dag meira en 40 milljónir notenda. Við sendumst með mat frá veitingastöðum, vikuinnkaupin frá matvöruverslunum og jafnvel blómin á valentínusardaginn. Framtíðarsýnin er að notendur Wolt geti nálgast nánast hvað sem er í appinu og fengið heimsent.
Í þessu starfi gegnir þú lykilhlutverki í vexti fyrirtækisins og uppbyggingu á markaðsleiðandi úrvali fyrir viðskiptavini okkar. Sem aðalábyrgðaraðili fyrir SMB-sölu (litla og meðalstóra samstarfsaðila) á Íslandi munt þú halda utan um sölupípu með veitinga- og smásöluaðilum og greina tækifæri með mikla vaxtarmöguleika.
Þú beitir viðskiptamiðaðri nálgun og nýtir góða samskipta- og samningatækni til að sýna fram á það virði sem Wolt skapar fyrir hvern og einn samstarfsaðila. Jafnframt tekur þú forystu í stefnumótandi verkefnum sem stuðla að vexti og arðsemi Wolt á Íslandi og leggur þig fram við að vera fyrirmynd fyrir annað starfsfólk.
Starfið felur í sér náið samstarf við teymi á Íslandi, í Noregi og á alþjóðavísu, ávallt með hagsmuni fyrirtækisins að leiðarljósi.
Hlutverk þitt verður að:
-
Skilgreina og þróa staðbundna sölustefnu til að ná markmiðum stjórnendateymisins. Það gerir þú með því að greina samstarfsaðila með mikla möguleika og nýta gögn til að meta árangur þeirra og rekstrarhagkvæmni.
-
Þróa djúpa þekkingu á íslenskum veitinga- og smásölumarkaði og greina lykilsamstarfsaðila („must-haves“) fyrir Wolt.
-
Bera ábyrgð á SMB-sölu á Íslandi. Þú byggir upp markaðsþekkingu, veitir innsýn í staðbundinn markað og vinnur með hagsmunaaðilum að því að fjölga samstarfsaðilum og styðja við markmið Wolt.
-
Afla nýrra samstarfsaðila í samræmi við stefnu fyrirtækisins til að ná bæði stefnumótandi og rekstrarlegum markmiðum á þínu ábyrgðarsviði.
-
Byggja upp og halda skipulega utan um sölupípu með nýjum tækifærum og aðlaga nálgunina þannig að Wolt verði ávallt fyrsti valkostur samstarfsaðila.
-
Stýra öllu söluferlinu frá upphafi til enda; allt frá greiningu tækifæra og fundarhaldi til samningaviðræðna og lokunar samninga.
-
Beita gagnadrifinni ákvarðanatöku og sterkri dómgreind til að meta markaðsmöguleika og hámarka árangur samstarfsins.
-
Taka ábyrgð á og leiða verkefni sem styrkja markaðsstöðu fyrirtækisins, í nánu samstarfi við aðrar deildir.
Hver ert þú?
-
Þú hefur mikla reynslu og sýnilegan árangur í B2B nýsölu og vettvangssölu. Þekking á veitinga- og smásölumarkaði er mikill kostur.
-
Þú hefur færni til að sinna mörgum verkefnum og forgangsraða samtímis í hröðu og síbreytilegu starfsumhverfi.
-
Þú hefur reynslu af stefnumótun og leiðsögn í sölu. Reynsla af CRM-kerfum er jafnframt kostur.
-
Þú ert náttúrulegur „hunter“ með drifkraft til að stækka úrvalið og finna lausnir á hindrunum.
-
Þú býrð yfir sterkri ráðgefandi söluhæfni, átt auðvelt með tengslamyndun og getur sérsniðið viðskiptalausnir að þörfum hvers og eins.
-
Þú hefur framúrskarandi samskipta-, samninga- og kynningarhæfni.
-
Þú ert með stefnumiðað hugarfar og kannt að beina tíma þínum að þeim tækifærum sem skila mestum árangri.
-
Þú hefur góða greiningarhæfni og skilning á sölumælikvörðum, þóknanastrúktúr og viðskiptalegum árangri.
-
Þig einkennir framkvæðasemi, sjálfstæði, lausnamiðuð nálgun og rík ábyrgðarkennd.
-
Þú ert samvinnufús liðsmaður sem hefur ánægju af því að deila þekkingu og styðja við bakið á samstarfsfólki.
-
Þú hefur góða tæknilega færni, ert forvitin/n að eðlisfari og býrð yfir mikilli aðlögunarhæfni.
-
Reiprennandi íslenska og enska eru skilyrði til að eiga árangursrík samskipti við okkar samstarfsaðila.
Helstu árangursmælikvarðar (KPIs):
-
Mánaðarleg og ársfjórðungsleg sölumarkmið.
-
Markaðshlutdeild og útbreiðslumarkmið.
-
Markaðsleiðandi breidd og gæði í úrvali samstarfsaðila.
-
Framúrskarandi stjórnun á sölupípu ásamt virkri notkun CRM-kerfa og annarra sölutækja.
-
Þóknunarhlutfall samstarfsaðila haldist innan samþykktra marka.
(Athugið að árangursmælikvarðar geta breyst með tímanum eftir þörfum fyrirtækisins og einstök verkefni geta haft sína eigin mælikvarða).
Af hverju er þetta starf mikilvægt?
Sölustjórinn gegnir lykilhlutverki í áframhaldandi vexti Wolt og viðhaldi á markaðsleiðandi stöðu okkar á Íslandi. Með öflugri framkvæmd í sölu, djúpum skilningi á markaðnum og árangursríkri uppbyggingu samstarfssambanda tryggir þú öflugt vistkerfi samstarfsaðila, eykur valmöguleika viðskiptavina og knýrð fram sjálfbæran vöxt fyrirtækisins á íslenskum markaði.
Bachelor's degree
Íslenska
Enska










