

Markaðsfulltrúi
Bragðlaukar leita að drífandi og skipulögðum markaðs- og sölufulltrúa sem vill taka virkan þátt í áframhaldandi vexti félagsins. Um er að ræða fjölbreytt og ábyrgðarmikið lykilhlutverk þar sem viðkomandi vinnur náið með eigendum fyrirtækisins og kemur beint að markaðssetningu, sölu, þjónustu við viðskiptavini og daglegum rekstri.
Bragðlaukar eru rótgróið veitinga- og þjónustufyrirtæki sem reka veitingastað í Urðahvarfi auk þess að bjóða upp á veislu- og fyrirtækjaþjónustu. Félagið er þekkt fyrir vandaðan mat, faglega framkvæmd og persónuleg samskipti þar sem lögð er áhersla á áreiðanleika og lausnamiðaða þjónustu frá fyrstu fyrirspurn til lokaafhendingar.
Bragðlaukar eru í vexti og leita að öflugum einstaklingi sem vill taka virkan þátt í að þróa markaðs- og sölustarfsemi félagsins í nánu samstarfi við eigendur.
- Markaðs- og kynningarmál félagsins, bæði stafrænt og hefðbundið
- Sala á veislu- og fyrirtækjaþjónustu
- Samskipti við viðskiptavini frá fyrirspurn til afhendingar
- Umsjón með reikningagerð, tilboðum og eftirfylgni
- Samskipti við birgja og samstarfsaðila
- Uppfærsla á vef, samfélagsmiðlum og kynningarefni
- Greining á sölutækifærum og þátttaka í mótun vaxtaráætlana
- Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri félagsins
- Reynsla og brennandi áhugi á markaðs- og sölustörfum
- Hæfni í að útbúa efni fyrir samfélagsmiðla og skapandi hugsun
- Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund
- Geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis
- Almenn tölvufærni og reynsla af reikningagerð er kostur
- Mjög góð færni í íslensku, góð færni í ensku
- Lykilhlutverk í vaxandi og metnaðarfullu fyrirtæki
- Nána samvinna við eigendur og raunveruleg áhrif á þróun og vöxt
- Fjölbreytt og lifandi starfsumhverfi
- Sveigjanleika og tækifæri til að móta starfið
- Góðan starfsanda og skýra ábyrgð
Íslenska










