OK
OK
OK

Viðskiptastjóri hjá OK

OK leitar að reyndum og áhugasömum Viðskiptastjóra til að bætast við öflugt teymi okkar.

Hjá OK starfar teymi reynslumikilla sérfræðinga á flestum sviðum upplýsingatækni sem sjá um fjölbreytt verkefni í ráðgjöf, rekstri, þjónustu og innleiðingu lausna hjá stærstu og kröfuhörðustu fyrirtækjum og stofnunum landsins, ásamt stórum erlendum viðskiptavinum. Hjá OK sameinast eldmóður, reynsla og þekking svo þarfir viðskiptavina séu alltaf í fyrirrúmi.

Viðskiptastjóri hjá OK gegnir mikilvægu hlutverki í að efla og viðhalda langtímasamskiptum við viðskiptavini okkar og stuðla að vexti fyrirtækisins.

Þetta er spennandi tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif í kraftmiklu og þjónustumiðuðu fyrirtæki.

Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Við hvetjum öll sem telja sig búa yfir þeirri getu og færni sem leitast er eftir til að sækja um, óháð kyni. Eingöngu er tekið við umsóknum í gegnum Alfreð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón og þróun viðskiptasambanda við lykilviðskiptavini

  • Greining á þörfum viðskiptavina og ráðgjöf á viðeigandi lausnum

  • Samvinna við tækni- og þjónustuteymi til að tryggja framúrskarandi þjónustu

  • Öflun nýrra viðskiptasambanda

  • Tilboðs- og samningagerð

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af störfum í upplýsingatækni eða viðskiptastjórnun á fyrirtækjamarkaði skilyrði

  • Skilningur á upplýsingatækniþjónustu og skýjalausnum er mikill kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og jákvætt viðmót 

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð 

  • Geta til að byggja upp traust og langtímasamband við viðskiptavini 

  • Þjónustulund og lausnamiðað hugarfar 

Fríðindi í starfi

🔋 Miðlægar starfsstöðvar í Reykjavík – aðgengi að hleðslustæði  

🚲 Líkamsræktarstyrkur til að styðja við heilsusamlegan lífsstíl  

🚿 Hjólageymsla með rafmagni og aðgangur að sturtum  

🥗 Mötuneyti á staðnum með salatbar og grænkerakostum  

💪 Metnaðarfullt starfsumhverfi 

🥳 Öflugt félagslíf á vegum starfsmannafélags og afþreyingarherbergi 

Auglýsing birt23. júní 2026
Umsóknarfrestur7. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skútuvogur 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkýrslurPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar