Bara tala
Bara tala
Bara tala

Sölustjóri Bara tala

Bara tala leitar að öflugum sölustjóra til að ganga til liðs við teymið. Sölustjórinn mun vinna náið með öllu teyminu, en þó sérstaklega framkvæmdastjóra og samskiptastjóra, að því sameiginlega markmiði að opna dyr fyrir erlent starfsfólk á Íslandi.

Aðalhlutverk sölustjórans verður að stækka samstarfshóp Bara tala. Það þýðir að viðkomandi greinir tækifæri hjá fyrirtækjum sem ekki eru í áskrift, hefur frumkvæði að samskiptum, kynnir Bara tala á fundum og leiðir ferlið yfir í farsælt samstarf. Markmiðið er að tryggja að enn fleiri vinnustaðir geti boðið sínu fólki upp á hagnýtt íslenskunám í því umhverfi sem það starfar í.

Leitað er að einstaklingi með reynslu af sölu og tengslamyndun á fyrirtækjamarkaði (B2B). Við leitum að manneskju sem brennur fyrir því að ná árangri, er lagin við að byggja upp traust og hefur sterka trú á inngildingu.

Áhugasamir sem eru tilbúnir að takast á við þessa spennandi áskorun og vilja hafa raunveruleg, jákvæð áhrif á íslenskt samfélag eru hvattir til að sækja um með því að senda ferilskrá og kynningarbréf.

Helstu verkefni og ábyrgð

Öflun nýrra samstarfsaðila og samningsgerð: Greina ný tækifæri á markaðnum, eiga frumkvæði að samskiptum við fyrirtæki, bóka og leiða kynningarfundi, útbúa samstarfstilboð og ganga frá samningum.

Samningsendurnýjun og eftirfylgni: Vinna náið með samskiptastjóra að því að eiga reglulegt samtal við núverandi samstarfsaðila. Þegar samningstíma lýkur er árangurinn yfirfarinn saman og leiddar viðræður um áframhaldandi samstarf og nýja samninga.

Tengslamyndun og ræktun samstarfs: Byggja upp og viðhalda sterkum samböndum við stjórnendur og forsvarsmenn í íslensku atvinnulífi.

Sýnileiki og kynningarmál: Finna skapandi leiðir til að vekja athygli á Bara tala og styðja við útbreiðslu lausnarinnar, hvort sem það er í gegnum viðburði, fréttatilkynningar, fréttabréf eða samfélagsmiðla.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Árangursrík reynsla af fyrirtækjasölu (B2B): Reynsla af samningsgerð og hæfni til að fylgja málum eftir uns samningar nást. Viðkomandi er drifinn áfram af árangri, hefur ríka samskiptahæfni og hefur einlægan áhuga á fólki og tengslamyndun.

  • Öflugt tengslanet: Kostur er að umsækjandi hafi gott og sterkt tengslanet á íslenskum vinnumarkaði.

  • Persónulegir eiginleikar: Leitað er að drifnum og sjálfstæðum einstaklingi sem er lausnamiðaður, á auðvelt með að eiga frumkvæði að samtölum og hefur brennandi áhuga á inngildingu og verkefninu.

Fríðindi í starfi

Fjölskylduvænn vinnustaður: Vinnutími þar sem unnið er í takt við skóla- og leikskólatíma barna.

Jafnvægi á milli vinnu og einkalífs: Lögð er rík áhersla á heilbrigt jafnvægi og að yfirvinna eigi sér almennt ekki stað.

Góður vinnubúnaður: Allur nauðsynlegur tæknibúnaður (tölva og sími) fylgir starfinu, auk þess sem greitt er fyrir síma- og internetáskrift.

Heilsuefling: Í boði er íþrótta- og heilsustyrkur.

Auglýsing birt22. júní 2026
Umsóknarfrestur12. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
NorskaNorska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Lágmúli 5, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Sölumennska
Starfsgreinar
Starfsmerkingar