Tónlistarskóli Árnesinga
Tónlistarskóli Árnesinga

SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA

Tónlistarskóli Árnesinga leitar að öflugum leiðtoga til að stýra faglegu starfi og rekstri eins stærsta og umsvifamesta tónlistarskóla landsins.

Skólastjóri ber ábyrgð á faglegu starfi, daglegum rekstri og þróun skólans og leiðir öflugt teymi starfsfólks.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri og starfsemi skólans
  • Leiða faglegt starf skólans og stuðla að áframhaldandi þróun tónlistarnáms
  • Mannauðs- og launamál
  • Samskipti við sveitarfélög, grunnskóla og aðra samstarfsaðila
  • Áætlanagerð og upplýsingagjöf
  • Vinna með starfsmönnum skólans að stefnumótun og þróun starfseminnar
  • Ýmis önnur verkefni sem snerta stjórnun skólans
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Tónlistarmenntun á háskólastigi; menntun á sviði stjórnunar kostur
  • Stjórnunarreynsla, reynsla af verkefnastjórnun, rekstri og/eða menningarstarfi æskileg
  • Innsýn í starfsemi tónlistarskóla og þróun tónlistarnáms æskileg
  • Leiðtogafærni og hæfni til að leiða faglegt starf og þróun
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, jákvætt viðmót og þjónustulund
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Fagmennska, frumkvæði og metnaður í starfi
  • Mjög góð tölvukunnátta, tæknilæsi og innsýn í samfélagsmiðla
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Auglýsing birt10. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Eyravegur 9, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar