

Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar eru um 100 nemendur. Skólinn starfar í Skólamiðstöð Fáskrúðsfjarðar undir sama þaki og leikskóli, tónlistarskóli og bókasafn. Í skólastarfinu er unnið með byrjendalæsi, að innleiðingu leiðsagnarnáms, innleiðingu uppfærðrar aðalnámskrár og samvinna er um innra mat og gæðastarf í grunnskólum Fjarðabyggðar.
Í skólastarfinu er byggt á Uppeldi til ábyrgðar og ART.
Kjörorð skólans eru "ánægja, ábyrgð, árangur".
Skólinn er einn af fimm grunnskólum Fjarðabyggðar sem eru hluti af öflugu skólasamfélagi í Fjarðabyggð.
Nánari upplýsingar um skólann er að finna á heimasíðu, www.fask.is.
· Stjórnun og ábyrgð á daglegum rekstri
· Skipulag skólastarfs og samhæfing starfskrafta skólans
· Fagleg forysta, stefnumótun og þróun skólastarfs
· Samstarf við stofnanir, heimili og samfélag
Menntun og hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til kennslu
• Menntun í stjórnun er æskileg
• Reynsla af rekstri, stjórnun og þróunarstarfi er æskileg
• Færni í mannlegum samskiptum, metnaður og frumkvæði
Íslenska










