
Þingeyjarsveit
Þingeyjarsveit er landmesta sveitarfélag landsins og státar af einstakri náttúrufegurð og náttúruauðlindum. Sveitarfélagið er sannkölluð útivistarparadís. Atvinnulífið er öflugt með fjölbreyttum möguleikum, m.a. í ferðaþjónustu, landbúnaði og matvælaframleiðslu. Aðstaða er fyrir hendi fyrir störf án staðsetningar. Þingeyjarsveit leggur áherslu á umhverfismál og sjálfbæra nýtingu auðlinda ásamt blómlegu mannlífi.
Þingeyjarsveit er ákjósanlegur búsetukostur fyrir þá sem kjósa gott mannlíf, friðsæld í fagurri sveit með nálægð við stóra þéttbýlisstaði.
SKÓLASTJÓRI
Laus er til umsóknar staða skólastjóra við Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit.
Leitað er að drífandi og traustum einstaklingi með góða þekkingu á skólastarfi til að leiða skapandi skólastarf og virkja þátttöku skólans í samfélagslegum nýsköpunarverkefnum í anda sjálfbærrar þróunar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fagleg forysta og þróun skólastarfs í samræmi við lög um grunnskóla, aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu Þingeyjarsveitar
- Daglegur rekstur, stjórnun og starfsmannamál
- Leiða starf í framsæknu skólasamfélagi sem nýtir styrkleika sem felast í fjölbreyttri náttúru og sterku samfélagi
- Samstarf við aðila innan skólasamfélagsins
- Önnur verkefni í samráði við yfirmann
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf sem kennari og starfsreynsla á sviði kennslu
- Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- eða menntunarfræða er kostur
- Reynsla af stjórnun, stefnumótun og áætlanagerð
- Áhugi og reynsla af skólaþróun og framsæknu skólastarfi
- Sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni
- Hugmyndaauðgi og frumkvæði
- Góð færni í samskiptum og leiðtogahæfileikar
- Mjög góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli
Auglýsing birt27. febrúar 2026
Umsóknarfrestur13. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Stórutjarnaskóli 153460, 641 Húsavík
Starfstegund
Hæfni
HugmyndaauðgiKennariMannauðsstjórnunMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (7)

Leikskólinn Hagasteinn: Aðstoðarskólastjóri, nýr skóli
Akureyri

Aðstoðarskólastjóri Salaskóla
Salaskóli

Aðstoðarskólameistari
Menntaskóli Borgarfjarðar

Skólastjóri Fellaskóla Fellabæ, við þéttbýli Egilsstaða
Fellaskóli Fellabæ

Aðstoðarskólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Skólastjóri Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar

Skólastjóri - Þorláksskóli
Þorláksskóli