
Menntaskóli Borgarfjarðar
Einkunnarorð Menntaskóla Borgarfjarðar eru “Sjálfstæði, færni og framfarir”. Menntaskóli Borgarfjarðar hefur frá upphafi verið framsækin menntastofnun og verið óhrædd að taka upp nýjar leiðir í kennsluháttum. Skólinn hlaut hvatningarverðlaun hinna íslensku menntaverðlauna haustið 2022 og innan skólans er í gangi skólaþróunarverkefnið „Menntun fyrir störf framtíðar“.
Menntaskóli Borgarfjarðar er einkarekinn framhaldsskóli staðsettur í Borgarnesi. Nemendur eru um um 160 og starfsfólk í kringum 20.

Aðstoðarskólameistari
Menntaskóli Borgarfjarðar (MB) óskar eftir að ráða aðstoðarskólameistara. Aðstoðarskólameistari er lykilhlekkur í forystu skólans, staðgengill skólameistara og nánasti samstarfsaðili hans í daglegri stjórnun, stefnumótun og þróun skólastarfs. Um er að ræða fullt starf og þarf umsækjandi að geta hafið störf í síðasta lagi 1. ágúst nk.
Leitað er að framsýnum leiðtoga sem hefur brennandi áhuga á menntamálum, einlægan metnað fyrir velgengni nemenda og framgangi í námi auk vilja til að vinna að framsæknu skólastarfi með nemendum, starfsfólki, stjórn og nærsamfélagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Mótun skólastarfs á grundvelli aðalnámskrár framhaldsskóla
- Þátttaka í stefnumótun og áframhaldandi þróun og nýsköpun í skólastarfi
- Skipulag námsframboðs
- Skipulag kennslu og stundaskrár
- Veitir kennslufræðilega forystu
- Umsjón með námsferlum nemenda
- Ábyrgð á námsmati og mati náms úr öðrum skólum
- Ábyrgð á gæðastarfi og sjálfsmati
- Aðkoma að miðlun upplýsinga á miðlum MB
- Ábyrgð á kennslukerfi og tæknilegum lausnum
- Samskipti við nemendur, starfsfólk og stjórn
- Umsjón með útskriftarnemum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi og leyfisbréf kennara, viðbótarmenntun í stjórnun æskileg.
- Reynsla af kennslu/stjórnun í framhaldsskóla æskileg
- Reynsla og þekking á stefnumótun og mótun framtíðarsýnar menntastofnana
- Framúrskarandi samskiptahæfileikar
- Leiðtogahæfileikar, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Gott vald á íslensku og ensku í bæði töluðu og rituðu máli
- Áhugi á nýtingu tækni í skólastarfi
- Hreint sakavottorð og gott orðspor
Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur25. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Borgarbraut 54, 310 Borgarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Leikskólakennari óskast í leikskólann Kirkjuból
Leikskólinn Kirkjuból

Leikskólakennari / leiðbeinandi Seljaborg
Leikskólinn Seljaborg

Umsjónarkennari á yngsta stigi við Flóaskóla
Flóaskóli

Leikskólakennari
Leikskólinn Álfaborg

Leikskóla- og frístundaliði - Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær

Kennarar – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær

Óskum eftir leikskólakennara
Álfatún

SKÓLASTJÓRI TÓNLISTARSKÓLA ÁRNESINGA
Tónlistarskóli Árnesinga

Heilsuleikskólinn Holtakot auglýsir eftir einstaklingi til að sinna stöðu snemmtækrar íhlutunar
Garðabær

Leikskólinn Akrar auglýsir eftir leikskólakennara
Leikskólinn Akrar

Velferðarsvið: Teymisstjóri farsældar barna
Akureyri

Umsjónarmaður frístundar á Hvanneyri
Borgarbyggð