Breiðablik
Breiðablik
Breiðablik

Stjórnandi sumarnámskeiða Breiðabliks

Sumarnámskeið Breiðabliks eru alltaf gífurlega vinsæl og um 1000 börn skrá sig á hverju sumri.

Námskeiðin eru hugsuð fyrir börn á 7. aldursári og til 10 ára.

Börnin geta valið á milli nokkurra námskeiða og í gegnum tíðina hafa verið í boði t.d. námskeið í fótbolta, körfubolta, skák, frjálsum íþróttir, rafíþróttum og ævintýranámskeið.

Námskeiðin bjóðast í sex vikur frá 8. júní þegar gert er 2ja vikna frí fyrir verslunarmannahelgina og loks eru tvær vikur af námskeiðum í ágúst (3.-14. ágúst).

Ráðningartími er 9 vikur þar sem námskeiðin eru í 8 vikur ásamt einni viku i undirbúning, Þannig að stjórnandi sumarnámskeiðanna þarf helst að geta hafið störf 1. júní.

Stjórnandi sumarnámskeiðanna þarf að vera mjög skipulagður og hæfur í samskiptum enda stýrir hann öllum leiðbeinendum námskeiðanna ásamt tugum unglinga frá Vinnuskóla Kópavogs. Unnið er í nánu samstarfi við Íþróttastjóra Breiðabliks.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkstýra leiðbeinendum námskeiðanna og unglingum úr Vinnuskóla Kópavogs
  • Skipuleggja dagskrá fyrir hvert námskeið ásamt yfirleiðbeinendum námskeiðanna
  • Skrá niður vinnutíma hjá öllu starfsfólki námskeiðanna ásamt því að skipuleggja vinnutíma unglinganna þar sem þau vinna bara hluta úr sumri.
  • Sjá um samskipti við foreldra barna sem skráð eru á námskeiðin ef þarf.
  • Vinna í góðu samstarfi við skrifstofu Breiðabliks og þá sérstaklega Íþróttastjóra félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af kennslu og/eða þjálfun er mikill kostur
  • Íþrótta- og/eða félagsfræðimenntun er mikill kostur
  • Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára
Auglýsing birt2. mars 2026
Umsóknarfrestur30. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Grunnfærni
Staðsetning
Dalsmári 5, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TóbakslausPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)PathCreated with Sketch.VeiplausPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar