Akureyri
Akureyri
Akureyri

Skipulagssvið Akureyrarbæjar: Verkefnastjóri byggingarmála

Skipulagssvið Akureyrarbæjar auglýsir starf verkefnastjóra byggingarmála laust til umsóknar. Um er að ræða 100% dagvinnustarf og er starfið ótímabundið.

Æskilegt er að umsækjandi getið hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

Skipulagssvið hefur umsjón með aðalskipulagi sveitarfélagsins, deiliskipulagi hverfa og þátttaka í gerð svæðisskipulags. Yfirferð og samþykkt teikninga og hönnunargagna vegna bygginga. Útgáfa byggingarleyfa og framkvæmdaleyfa. Skráning lóða og fasteigna, samvinna við önnur svið sveitarfélagsins, fyrirtæki og stofnanir varðandi skipulagsmál o.fl. umsagnir um skipulagstengd atriði, kynningarfundir og upplýsingagjöf. Skipulagssvið ber einnig ábyrgð á skipulagi umferðarmála og landfræðilegu upplýsingarkerfi Akureyrarbæjar (LUKA).

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirferð aðaluppdrátta og annarra hönnunargagna sem fylgja umsóknum um byggingarleyfi.
  • Samskipti við hönnuði, verktaka og íbúa um byggingarmál.
  • Annast úrvinnslu umsagna um rekstrarleyfi.
  • Ýmiss önnur verkefni á skipulagssviði sem snúa að umsýslu byggingarmála.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Byggingarfræðingur, -tæknifræðingur, -verkfræðingur eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Starfsreynsla á sviði skipulags- og byggingarmála.
  • Þekking á mannvirkjalögum og byggingarreglugerð.
  • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur.
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.
  • Skipulagsfærni, nákvæmni og hæfileiki til að vinna sjálfstætt.
  • Geta og vilji til að tileinka sér nýjungar.
  • Frumkvæði, þjónustulund og öguð vinnubrögð.
  • Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt17. nóvember 2025
Umsóknarfrestur15. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Geislagata 9, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ByggingafræðingurPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SkipulagsfræðingurPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.VerkfræðingurPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar