Landsnet hf.
Landsnet hf.
Landsnet hf.

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar

Við leitum að metnaðarfullum og ábyrgum liðsfélaga til að styrkja teymi sérfræðinga sem sinnir rekstri stjórn- og varnarbúnaðar og sjálfvirknivæðingu í flutningskerfi raforku. Hlutverk teymisins er að undirbúa Landsnet fyrir framtíðina – hvort sem það felur í sér nýja tækni, aukinn raforkuflutning, nýja viðskiptavini eða breyttar áherslur í orkumálum.

Landsnet er framarlega í notkun stafrænna lausna í orkuflutningi. Í starfinu sameinast rafmagnsþekking og verkleg vinna við stillingar og prófanir á stjórn- og varnarbúnaði í tengivirkjum. Þú tekur þátt í verkefnum sem hafa raunveruleg samfélagsáhrif og styður við stafræna þróun flutningskerfisins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Rekstur og eftirlit með stjórn- og varnarbúnaði.
  • Innleiðing nýrrar tækni í stjórn- og varnarbúnaði raforkukerfa.
  • Verkleg vinna á vettvangi, m.a. mælingar, prófanir og uppsetning búnaðar.
  • Þátttaka í greiningu gagna og upplýsinga til að bæta rekstur og öryggi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði rafiðn-, rafmagns- eða tæknifræði. Marktæk starfsreynsla getur komið í stað formlegrar menntunar.
  • Þekking og reynsla í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar og/eða raforkukerfum.
  • Mjög góð tölvukunnátta.
  • Þekking á netsamskiptum er kostur.
  • Góð hæfni í uppbyggilegum samskiptum og samvinnu.
Fríðindi í starfi
  • Tækifæri til að hafa áhrif á samfélagslega mikilvæg verkefni og móta stafrænan rekstur flutningskerfisins.
  • Gott vinnuumhverfi þar sem áhersla er á faglegan stuðning og þjálfun.
  • Góð aðstaða á vinnustaðnum, m.a. líkamsrækt og mötuneyti.
  • Samstarf við fjölbreytt, áhugasamt og þekkingarmikið starfsfólk.
Auglýsing birt14. nóvember 2025
Umsóknarfrestur26. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Gylfaflöt 9, 112 Reykjavík
Miðási 7, 700 Egilsstaðir
Rangárvöllum, 603 Akureyri
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar