

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bæklunarskurðdeild í Fossvogi
Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á bæklunarskurðdeild í Fossvogi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun, búa yfir afburða samskiptafærni og hafa hæfni til að takast á við breytingar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag hjúkrunar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga í hjúkrun sem stuðla að auknum gæðum hjúkrunar, gagnreyndum starfsháttum og öryggi sjúklinga. Aðstoðardeildarstjóri er virkur þátttakandi í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauði. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi og fjölmargt annað fagfólk spítalans.
Í boði er spennandi og áhugavert starf og mikil tækifæri til faglegrar þróunar. Starfshlutfall er 100% og unnið að mestu í dagvinnu. Starfið er laust frá 1. febrúar 2027 eða eftir samkomulagi. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Bæklunarskurðdeild er ný, sameinuð og stór legudeild og tilheyrir dag- og legudeildum skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu. Deildin er 35 rúma legudeild og starfa tæplega 125 starfsmenn; hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Deildin er bráðadeild og sinnir bráðatilfellum sem tengjast stoðkerfi vegna slysa. Auk þess sinnir deildin sjúklingum sem leggjast inn vegna ýmissa aðgerða á stoðkerfi, s.s. eftir gerviliðaaðgerðir og hryggspengingar.
- Vinnur með deildarstjóra að skipulagningu starfseminnar og mótun liðsheildar
- Ber ábyrgð á verkefnum sem hjúkrunardeildarstjóri felur honum
- Er leiðandi í klínísku starfi, öryggis- og gæðastarfi og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu og framþróun í hjúkrun
- Ber ábyrgð á framkvæmd hjúkrunar, rekstri og mönnun deildarinnar í fjarveru deildarstjóra
- Leiðir umbreytingarverkefni og teymisvinnu í samráði við deildarstjóra
- Stuðlar að uppbyggingu jákvæðrar menningar og sálræns öryggis starfsfólks
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Klínísk starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Leiðtogahæfni
- Jákvætt viðhorf og framúrskarandi hæfni í samskiptum og teymisvinnu
- Lausnamiðuð hugsun, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi
- Áhugi á umbóta- og gæðastarfi
- Góð íslenskukunnátta og tölvufærni
Íslenska












































