

Aðstoðardeildarstjóri á hjartarannsóknarstofu
Aðstoðardeildarstjóri óskast til starfa á fjölbreyttri deild hjartarannsókna.
Við leitum að geislafræðingi eða lífeindafræðingi sem hefur áhuga á stjórnun, faglegri þróun og umbótastarfi. Viðkomandi þarf að búa yfir góðri samskiptahæfni, frumkvæði og sveigjanleika og hafa áhuga á teymisvinnu og þróun þjónustunnar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra að skipulagningu og þróun starfseminnar og innleiðingu nýjunga. Starfið felur einnig í sér þátttöku í verkefnum tengdum stjórnun, mannauði, þjónustu og gæðum.
Starfsemi hjartarannsóknarstofu er fjölbreytt og enginn dagur er eins. Þjónusta sem heyrir undir starfsemi hjatarannsóknar er m.a. gang- og bjargráðseftirlit (stað- og fjarvöktun), hjartalínurit, hjartaómun og holter. Skjólstæðingar hjartarannsóknar geta einnig verið inniliggjandi eða komið frá öðrum dag- og göngudeildum, bæði við Hringbraut og í Fossvogi. Þá vinnur starfsfólk deildarinnar náið með öðrum hjartatengdum deildum spítalans.
Á deildinni er mjög góður starfsandi, frábært samstarfsfólk og tækifæri til að þróa faglega sérþekkingu og fjölþætta færni.
Um er að ræða 80-100% starfshlutfall í dagvinnu og ráðið verður í starfið frá 1. janúar 2027 eða eftir samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Er leiðandi í klínísku starfi, framþróun og öðru umbótastarfi sem stuðlar að bættri þjónustu innan hjartarannsóknar
- Virk þátttaka í teymisvinnu
- Ber ábyrgð á starfsemi, mönnun og rekstri deildar í fjarveru og í samráði við deildarstjóra
- Ber ábyrgð á daglegri skipulagningu og framkvæmd þjónustu í samráði við deildarstjóra
- Ber ábyrgð á öðrum verkefnum sem deildarstjóri felur honum
- Stuðlar að hvetjandi og jákvæðu starfsumhverfi og stöðugri liðsheild
- Íslenskt starfsleyfi geislafræðings eða lífeindafræðings
- Viðbótarmenntun og /eða fagleg reynsla sem nýtist í starfi er kostur
- Áhugi og reynsla af þverfaglegu samstarfi, teymisvinnu og umbótastarfi
- Jákvætt viðmót og mjög góð hæfni í samskiptum
- Reynsla af stjórnun og/ eða forystu er kostur
- Skipulögð, vönduð og öguð vinnubrögð
- Mikil aðlögunarfærni og geta til að starfa í fjölbreyttu umhverfi
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Mjög góð kunnátta í íslensku
Íslenska















































