

Næringarfræðingur á næringarstofu
Næringarstofa Landspítala auglýsir starf næringarfræðings.
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum næringarfræðingi til að sinna umsjón með fæðuþolsprófum og veita klíníska næringarmeðferð á göngu- og legudeildum Landspítala. Um er að ræða fjölbreytt og sérhæft starf þar sem reynir á fagþekkingu, skipulagshæfni og náið samstarf við aðrar heilbrigðisstéttir. Starfshlutfall er 50%, nema að um annað sé samið. Starfið er laust frá 1. desember 2026 eða samkvæmt samkomulagi.
Á næringarstofu starfar öflugur hópur næringarfræðinga í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir á flestum deildum spítalans. Veitt er sérhæfð næringarmeðferð samkvæmt verkferli NCP fyrir sjúklinga á bráða, legu- og göngudeildum Landspítala. Markvisst er unnið að umbótum og framþróun. Öflugt rannsóknarstarf fer fram á næringarstofu í samstarfi við háskóla og stofnanir innanlands og erlendis auk þess sem boðið er upp á starfsþjálfun í klínískri næringarfræði.
Fæðuþolspróf eru mikilvægur þáttur í greiningu fæðuofnæmis og eru framkvæmd á göngudeild ofnæmis A3 og Barnaspítala Hringsins. Undirbúningur fæðuþolsprófanna fer fram í eldhúsi Landspítala í nánu samstarfi við næringarfræðinga eldhússins.
Við leitum að einstaklingi með faglegan metnað og áhuga á fjölbreyttum klínískum verkefnum í krefjandi þverfaglegu starfsumhverfi. Góð skipulags- og samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum eru mikilvægir eiginleikar.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Íslenska
Enska








































