Landspítali
Landspítali
Landspítali

Læknir - Tímabundið starf

Læknir með lækningaleyfi óskast til starfa á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga. Um er að ræða tímabundið starf í 6-12 mánuði og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Starfið felur í sér göngudeildarvinnu á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga 11B/C. Sjúklingar sem sækja þá deild eru í krabbameinslyfjameðferð, eftirliti eftir meðferð krabbameina eða með bráð vandamál í tengslum við undirliggjandi sjúkdóm eða meðferð. Góð samvinna er við legudeild 11 EG, Heimaspítala og HERU. Læknirinn fær sérstaka starfslýsingu, aðlögun og skipulagða handleiðslu sérfræðilæknis.

Unnið er í náinni samvinnu við sérfræðilækna í krabbameinslækningum og felur starfið í sér þverfaglega teymisvinnu með öðrum sérgreinum læknisfræðinnar sem og öðrum starfstéttum sem koma að meðferð krabbameina. Lögð er sérstök áhersla á traust og teymisvinnu innan einingarinnar.

Starfið getur nýst vel þeim sem hafa hug á frekara sérnámi í krabbameinslækningum eða þeim sem hugsanlega hyggja á frekara sérnám í öðrum greinum sem koma að greiningu og meðferð krabbameina, svo sem á sviðum lyf- og skurðlækninga.

Fagleg árvekni og endurskoðun klínískra leiðbeininga og verkferla er hluti af fagmennsku deildarinnar.

Vinnulagið á deildinni byggir á samvinnu margra starfsstétta með það að markmiði að einstaklingar sem greinst hafa með krabbamein fá viðeigandi meðferð og stuðning.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi
Sérnámsgrunni eða sambærilegu starfsnámi lokið við upphaf starfs
Góð færni og lipurð í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Áhugi á að bæta þekkingu og færni í starfi
Gott vald á íslensku máli
Helstu verkefni og ábyrgð
Klínískt mat og meðferð á bráðum vandamálum tengdum krabbameinum og lyfjameðferð
Klínískt mat á einstaklingum sem eru í krabbameinslyfjameðferð varðandi aukaverkanir
Sinna ráðgjöf til annarra deilda varðandi sjúklinga í krabbameinsmeðferð eða þá sem nýlega hafa greinst í samráði við krabbameinslækna
Sinna erindum frá Heimaspítala krabbameinsþjónustu eins og við á
Þátttaka í samvinnu ólíkra sérgreina læknisfræðinnar s.s. eins og samráðsfundum
Þátttaka í gæða- og umbótastarfi
Þátttaka í kennslu og vísindastarfi
Þátttaka í vöktum almennra lyflækninga skv. samkomulagi
Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur9. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (33)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í kviðarholsteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf - Hera sérhæfð líknarþjónusta
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri í aðfangaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali