

Deildarstjóri gæðadeildar
Laus er til umsóknar staða deildarstjóra gæðadeildar á Landspítala. Gæðadeild heyrir undir skrifstofu framkvæmdastjóra lækninga.
Á gæðadeild starfa um 12 gæðastjórar sem sinna fjölbreyttum verkefnum, meðal annars umsjón með úrvinnslu atvika, gæðahandbók, árangursmælingum, úttektum og öðrum gæðamálum, auk uppbyggingar og viðhalds gæðastjórnunarkerfis Landspítala. Mikil þróun hefur átt sér stað í gæðamálum innan Landspítala undanfarin ár.
Deildarstjóri ber ábyrgð á gæðastjórnunarkerfi sjúkrahússins í heild sinni. Landspítali rekur heildstætt gæðastjórnunarkerfi sem nær bæði til rekstrarsviða og klínískrar starfsemi. Markmiðið er að gæðastjórnunarkerfi sjúkrahússins verði vottað í samræmi við viðeigandi alþjóðlega gæðastjórnunarstaðla á hinum ýmsu sviðum og að rannsóknastofur sjúkrahússins verði faggiltar eftir því sem við á.
Leitað er eftir öflugum leiðtoga með mikla reynslu af gæðamálum. Deildarstjóri þarf að búa yfir framúrskarandi samskipta- og leiðtogahæfni og eiga auðvelt með teymisvinnu og samstarf við ólík svið og fagstéttir við innleiðingu og viðhald gæðakerfa spítalans.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga. Um er að ræða 100% starf frá 1. desember 2026 eða eftir samkomulagi.








































