

Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Laus er til umsóknar staða hjúkrunardeildarstjóra á geðgjörgæslu Landspítala við Hringbraut. Leitað er að kraftmiklum hjúkrunarfræðingi með reynslu af stjórnun og hæfni til að leiða krefjandi þjónustu við sjúklinga og aðstandendur. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni, hafa hæfni til að leiða öfluga þverfaglega teymisvinnu og efla notendamiðaða nálgun, umbótastarf, öryggismál og uppbyggingu mannauðs í nánu samstarfi við aðra stjórnendur og starfsfólk.
Á geðgjörgæslu er veitt sérhæfð þjónusta í meðferð og umönnun einstaklinga með bráð geðræn einkenni vegna geðraskana. Gagnreynd þekking, viðurkenndir verkferlar og hugmyndafræði um geðgjörgæslu eru í fyrirrúmi ásamt góðu samstarfi við aðstandendur. Á deildinni starfa um 50 einstaklingar í þverfaglegu teymi. Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda.
Hjúkrunardeildarstjóri er í forystu fyrir starfsemi geðgjörgæslu ásamt yfirlækni deildarinnar og stýrir daglegum rekstri. Hjúkrunardeildarstjóri starfar í nánu samstarfi við forstöðuhjúkrunarfræðing, framkvæmdastjóra, yfirlækni deildar, aðra deildarstjóra í geðþjónustu og aðra stjórnendur fagstétta sem starfa á einingunni. Hjúkrunardeildarstjóri hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð.
Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. janúar 2027 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur kjarna 1 í geðþjónustu.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfsemi, flæði og gæðum hjúkrunarþjónustu; setur markmið um umbætur og öryggi og tryggir eftirfylgni; stuðlar að þekkingarþróun og kennslu og hvetur til vísindastarfa
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar
- Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækni, forstöðuhjúkrunarfræðing og framkvæmdastjóra
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi innan geðþjónustu
- Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan geðþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
- Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Framhaldsmenntun í hjúkrun og/ eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
- Farsæl reynsla af þverfaglegri teymisvinnu
- Reynsla af þjónustu við sjúklinga með alvarlegan og bráðan geðvanda og fjölþættar þjónustuþarfir
- Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
- Mjög góð hæfni í samskiptum, jákvætt viðmót og lausnamiðun
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Enska
Íslenska







































