

Skólastjóri við Lágafellsskóla
Mosfellsbær óskar eftir að ráða skólastjóra við Lágafellsskóla. Skólinn tók til starfa árið 2001 og er heildstæður grunnskóli fyrir nemendur í 1.–10. bekk. Við skólann er jafnframt rekið frístundastarf fyrir nemendur í 1.–4. bekk. Í skólanum eru um 550 nemendur og um 120 starfsmenn. Einkunnarorð skólans eru samvera, samvinna og samkennd og tekur skólastarfið mið af menntastefnu Mosfellsbæjar, Heimurinn er okkar.
Lágafellsskóli er framsækinn og lifandi skóli þar sem rík áhersla er lögð á samvinnu, fjölbreytta kennsluhætti og skapandi skólastarf. Teymiskennsla er mikilvægur þáttur í skólastarfinu og þar er unnið með breytilega námshópa sem styðja við nám, félagsfærni og samvinnu. Samþætting námsgreina skipar stóran sess þar sem hefðbundin mörk námsgreina eru brotin upp og nemendur takast á við fjölbreytt og skapandi viðfangsefni. List- og verkgreinar eru áberandi í skólamenningunni og Uppeldi til ábyrgðar leggur grunn að góðum samskiptum, ábyrgð og sterkri samfélagskennd. Öflug stoðþjónusta er einnig mikilvægur hluti skólastarfsins þar sem áhersla er lögð á að mæta ólíkum þörfum nemenda og styðja vel við þau sem þurfa aukinn stuðning.
Leitað er að metnaðarfullum og lausnamiðuðum leiðtoga með víðtæka reynslu og þekkingu á skólastarfi. Viðkomandi þarf að hafa brennandi áhuga á vellíðan og farsæld barna og unglinga, faglegri forystu, framsækinni skólaþróun og framúrskarandi skólastarfi. Mikilvægt er að viðkomandi hafi hæfni til að leiða umbætur og áframhaldandi þróun í samræmi við stefnu Mosfellsbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 25. október 2026
Umsókn skal fylgja yfirlit yfir menntun og fyrri störf, afrit af leyfisbréfi, kynningarbréf og greinargerð um framtíðarsýn umsækjanda á skólastarfið.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ SÍ.
Nánari upplýsingar um starfið veita Ólöf Kristín Sívertsen, sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs, [email protected], og Ágúst Frímann Jakobsson, leiðtoga grunnskólamála, [email protected]. Einnig er hægt að hringja í síma 525-6700.
Mosfellsbær leggur áherslu á jafnrétti og hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið.
Veita skólanum faglega forystu og móta framtíðarstefnu hans innan ramma laga og reglugerða, í samræmi við aðalnámskrá grunnskóla.
Leiða og bera ábyrgð á rekstri, þjónustu og daglegri starfsemi skólans.
Hafa forystu um og bera ábyrgð á mannauðsmálum, s.s. ráðningum, vinnutilhögun og starfsþróun.
Bera ábyrgð á innleiðingu farsældarlaga og efla samstarf í samræmi við þau.
Leyfi til að nota starfsheitið kennari og kennslureynsla.
Viðbótarmenntun í stjórnun eða önnur framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af faglegri forystu á sviði kennslu og þróunar í skólastarfi.
Sjálfstæði í störfum, ríkt frumkvæði, jákvæðni og vilji til þátttöku í þverfaglegu samstarfi.
Færni til að leita nýrra leiða í skólastarfi og leiða framsækna skólaþróun.
Færni í áætlanagerð og fjármálastjórnun.
Framúrskarandi samskiptafærni, lipurð og virðing í samskiptum ásamt góðu orðspori.
Íslenska
Enska