

Viltu stýra rekstri rafveitu Veitna?
Veitur leita að öflugum leiðtoga til að stýra rekstri rafveitu. Deildin ber ábyrgð á að dreifikerfi rafmagns starfi örugglega og áreiðanlega fyrir tugþúsundir heimila og fyrirtækja, allan sólarhringinn.
Rafveitan stendur á tímamótum. Orkuskipti, rafvæðing samgangna og vaxandi byggð auka álag á dreifikerfið og kröfur um afhendingaröryggi. Á sama tíma eru Veitur að færa viðhald úr viðbragði yfir í fyrirbyggjandi og áhættumiðað verklag. Deildarstjóri reksturs rafveitu gegnir lykilhlutverki í þeirri vegferð.
Um starfið
Deildin tilheyrir sviðinu Veitukerfi og ber ábyrgð á rekstri, ástandi og afköstum dreifikerfis rafmagns. Undir það heyra aðveitustöðvar, dreifistöðvar, há- og lágspennustrengir og tengdur búnaður.
Í deildinni starfa rekstrarstjórar og sérfræðingar rafveitu. Þau bera ábyrgð á kerfunum, þjónustuviðmiðum þeirra og rekstrarkostnaði. Þar starfar einnig stjórnstöð rafveitu, sem vaktar kerfið allan sólarhringinn og stýrir viðbrögðum við truflunum.
Stjórnandinn hefur það hlutverk að byggja upp deild, móta vinnubrögð hennar og leiða þverfaglegt teymi sérfræðinga. Viðkomandi starfar náið með stjórnendum deilda Vatnsmiðla og Eignastýringar og viðhaldsáætlana, og heyrir undir forstöðukonu Veitukerfa.
- Leiða rekstur og viðhald dreifikerfis rafmagns með áherslu á öryggi, afhendingaröryggi og hagkvæmni
- Bera ábyrgð á stjórnstöð rafveitu og tryggja skjót og örugg viðbrögð við truflunum og bilunum
- Leiða og efla teymi rekstrarstjóra, sérfræðinga og stjórnstöðvar, skýra hlutverk og ábyrgð og byggja upp sterka liðsheild
- Taka ákvarðanir um viðhald og endurnýjun á grunni gagna og mats á ástandi og áhættu, í nánu samstarfi við eignastýringu og viðhaldsáætlanir
- Færa reksturinn markvisst úr viðbragði yfir í fyrirbyggjandi viðhald og fylgja árangri eftir með skýrum mælikvörðum
- Tryggja að rafmagnsöryggi og öryggi starfsfólks séu ávallt í forgrunni
- Tryggja að þarfir rafdreifikerfisins til framtíðar, byggðar á reynslu úr rekstri, skili sér inn í langtímaáætlanir og fjárfestingar
- Bera ábyrgð á rekstrarkostnaði og fjárhagsáætlun deildarinnar
- Innleiða nýjar lausnir og tækni sem auka sveigjanleika, rekstraröryggi og skilvirkni dreifikerfisins
- Sterka leiðtogahæfni og reynslu af að leiða teymi og byggja upp ný vinnubrögð
- Metnað til að setja skýr markmið og fylgja þeim eftir þar til árangur næst
- Hæfni til að tengja saman gögn og rekstrarreynslu og breyta greiningu í markvissar ákvarðanir og framkvæmd
- Sterka kerfishugsun og vinnur markvisst með bæði gögn og fagþekkingu starfsfólks
- Reynslu af breytingastjórnun, getur miðlað flóknum málum á skýran hátt og skapað traust, skýra ábyrgð og gott samstarf þvert á fag- og rekstrareiningar
- Yfirvegun og góða dómgreind þegar á reynir
- Háskólamenntun á sviði rafmagns, til dæmis í rafmagnsverkfræði, rafmagnstæknifræði eða sambærilegu námi
Reynsla af rekstri rafdreifikerfa, orkuvinnslu, stóriðju eða öðru eignafreku rekstrarumhverfi er kostur. Þekking á eftirfarandi er einnig kostur:
- rafmagnsöryggismálum og öryggisstjórnun
- afhendingaröryggi og gæðum raforku
- truflanastjórnun og stjórn- og eftirlitskerfum (SCADA)
- áreiðanleikamiðuðu viðhaldi (RCM) eða eignastýringu
Veitur eru stærsta veitufyrirtæki landsins og reka innviði sem samfélagið treystir á allan sólarhringinn. Við tengjum stóran hluta landsmanna við rafmagn, hita, hreint vatn og fráveitu og vinnum að því að skapa trausta innviði til framtíðar.
Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að byggja upp nýja deild og móta hvernig Veitur vinna með eignir, áhættu, viðhald og áreiðanleika næstu árin. Viðkomandi fær að leiða raunverulega breytingu sem á að skila færri bilunum, öruggari þjónustu og markvissari nýtingu tíma og fjármuna.
Við bjóðum fjölbreytt og stuðningsríkt vinnuumhverfi þar sem framsýni, hagsýni, heiðarleiki og frumkvæði skipta máli. Við trúum því að ólík reynsla, þekking og sjónarmið leiði til betri ákvarðana og hvetjum öll sem uppfylla grunnskilyrði starfsins til að sækja um.
Kynntu þér vinnustaðinn nánar á www.veitur.is/vinnustadurinn.
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
- Aðgangur að Velferðartorgi
- Fæðingarorlofsstyrkur
- Aðgangur að líkamsræktarsal
- Mötuneyti á starfsstöð
- Fræðslustyrkir
- Aðgangur að orlofshúsum
- Góð aðstaða fyrir hjólreiðafólk
Nánari upplýsingar veitir Brynja Ragnarsdóttir, forstöðukona Veiturkerfa, á netfanginu [email protected].
Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál og verður listi yfir umsækjendur ekki birtur.
Enska
Íslenska








