Íslandsbanki
Íslandsbanki
Íslandsbanki

Útibússtjóri Íslandsbanka á Ísafirði

Vilt þú leiða öflugt teymi, byggja upp sterk viðskiptatengsl og hafa raunveruleg áhrif á samfélagið á Vestfjörðum?

Íslandsbanki leitar að metnaðarfullum leiðtoga í starf útibússtjóra á Ísafirði. Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á þjónustu, viðskiptum og fólki, og vill taka virkan þátt í áframhaldandi þróun bankans og viðskiptalífs á svæðinu.

Útibú Íslandsbanka á Ísafirði gegnir mikilvægu hlutverki í samfélaginu og þjónar bæði einstaklingum og fyrirtækjum með fjölbreyttum fjármála- og ráðgjafalausnum. Sem útibússtjóri berð þú ábyrgð fyrirtækjaþjónustu útibúsins, sókn þess og vexti, rekstri útibúsins, árangri og þróun öflugrar þjónustu- og viðskiptamenningar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Byggja upp og viðhalda sterkum tengslum við fyrirtæki og samfélagið á svæðinu.
  • Drífa sölu- og viðskiptaþróun og stuðla að áframhaldandi vexti.
  • Fylgja eftir markmiðum, rekstraráætlunum og árangursmælikvörðum.
  • Tryggja að starfsemin sé í samræmi við reglur, stefnu og verklag bankans.
  • Taka virkan þátt í þróun og umbótum á þjónustu, ferlum og vinnubrögðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi samskipta- og tengslamyndunarhæfileika.
  • Frumkvæði, drifkraft og getu til að hrinda hugmyndum í framkvæmd.
  • Sterkan viðskiptaskilning og reynslu af þjónustu eða sölu.
  • Reynslu af stjórnunarstörfum og góðan árangur í að leiða fólk og teymi.
  • Áhuga á þróun fjármálaþjónustu og nýtingu tækni til að bæta þjónustu og vinnulag.
  • Góða greiningarhæfni og getu til að taka upplýstar ákvarðanir.
  • Menntun sem nýtist í starfi.
Auglýsing birt28. september 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnarstræti 1
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.BreytingastjórnunPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.MannauðsstjórnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.NákvæmniPathCreated with Sketch.SamningagerðPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SjóðsstreymiPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StarfsmannahaldPathCreated with Sketch.StefnumótunPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.ÞjónustulundPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar