

Fjármálastjóri Knattspyrnufélagsins Vals/Framkvæmdastjóri Hlíðarenda SES
Knattspyrnufélagið Valur leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í starf fjármálastjóra félagsins sem jafnframt gegnir hlutverki framkvæmdastjóra Hlíðarenda ses., sem heldur utan um eignasafn Vals, lóðir og fasteignir félagsins.
Um er að ræða fullt starf á líflegum og fjölbreyttum vinnustað þar sem mikill metnaður ríkir og tækifæri eru til að hafa áhrif á þróun og rekstur eins stærsta íþróttafélags landsins.
Fjármálastjóri ber ábyrgð á fjármálum og rekstri félagsins og gegnir mikilvægu hlutverki í stefnumótun, áætlanagerð og ákvarðanatöku.
Samhliða starfi fjármálastjóra gegnir viðkomandi starfi framkvæmdastjóra Hlíðarenda ses. og hefur umsjón með daglegum rekstri og verkefnum félagsins. Í því felst meðal annars umsjón með stjórnarfundum, gerð áætlana, fjármálum og samskiptum við opinbera aðila og aðra hagaðila.
Framkvæmdastjóri Hlíðarenda ses. ber jafnframt ábyrgð á umsýslu og stýringu eignasafns sem samanstendur af lóðum, fasteignum og lausu fé. Starfið felur meðal annars í sér ákvarðanatöku og umsjón með eignastýringu, sölu eigna, samningagerð og öðrum verkefnum sem tengjast hagkvæmri nýtingu og þróun eigna félagsins.
Á næstu árum eru fram undan umfangsmikil og spennandi verkefni sem tengjast uppbyggingu mannvirkja á félagssvæði Vals, auk annarra þróunar- og uppbyggingarverkefna. Framkvæmdastjóri Hlíðarenda ses. mun hafa beina og óbeina umsjón með þessum verkefnum og gegna lykilhlutverki í undirbúningi þeirra, áætlanagerð, samningum og eftirfylgni.
· Ábyrgð á daglegri stjórn fjármála og reksturs félagsins
· Ábyrgð á áætlanagerð, fjárhagsáætlunum og eftirfylgni með rekstri
· Umsjón með reikningshaldi, uppgjörum og almennum bókhaldsverkefnum
· Gerð rekstraryfirlita, greininga og stjórnendaupplýsinga
· Eftirlit með fjárhagslegri stöðu félagsins og miðlun upplýsinga til stjórnenda og stjórnar
· Umsjón með launamálum og tengdum ferlum
· Þátttaka í stefnumótun og þróun rekstrar félagsins
· Þróun og innleiðing verklags og ferla sem stuðla að skilvirkum og faglegum rekstri
· Ábyrgð á samskiptum við banka, endurskoðendur, opinbera aðila og aðra helstu samstarfsaðila
· Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskipta, fjármála, reikningshalds, endurskoðunar eða skyldra greina
· Góð reynsla af fjármálastjórnun, áætlanagerð, uppgjörum og rekstrargreiningu
· Reynsla af stjórnun og/eða ábyrgð á fjármálum og rekstri
· Áhugi á íþróttahreyfingunni og skilningur á sérstöðu rekstrar íþróttafélags er kostur
· Góð þekking á DK eða sambærilegum bókhalds- og fjárhagskerfum er skilyrði
· Sterkir leiðtogahæfileikar og framúrskarandi samskiptahæfni
· Metnaður, frumkvæði, nákvæmni og sjálfstæði í starfi
· Góð tölvukunnátta, tæknileg færni og áhugi á að nýta tækni til að bæta verklag og skilvirkni
· Mjög góð íslenskukunnátta er skilyrði
Íslenska
Enska



