

Fjármálastjóri (CFO) – GreenFish hf.
Fjármálastjóri – GreenFish
GreenFish leitar að fjármálastjóra til að leiða fjármál félagsins og taka virkan þátt í uppbyggingu alþjóðlegs tæknifyrirtækis í hröðum vexti.
Um GreenFish
GreenFish er leiðandi á heimsvísu í þróun gervigreindarlausna fyrir sjávarútveg. Útgerðir á öllum helstu hafsvæðum heims treysta á lausnir félagsins við ákvarðanatöku á sjó.
Félagið þróar sérsniðin líkön sem spá fyrir um staðsetningu, magn, gæði og samsetningu afla.
Hlutverkið
Fjármálastjóri ber ábyrgð á fjármálum GreenFish og heyrir beint undir forstjóra.
Við leitum að manneskju sem tekur frumkvæði og kemur hugmyndum í framkvæmd.
Helstu verkefni
-
Gerð fjárhagsáætlana og rekstrarspáa, ásamt greiningu og eftirfylgni með kostnaði og afkomu.
-
Sjóðstreymisáætlanir og lausafjárstýring.
-
Umsjón með mánaðarlegum uppgjörum í samstarfi við bókhaldsþjónustu og endurskoðendur.
-
Reikningagerð og innheimta.
-
Uppbygging mælaborðs fyrir lykilmælikvarða og regluleg upplýsingagjöf til forstjóra.
-
Uppbygging fjármálakerfa, verkferla og innra eftirlits, með áherslu á nýtingu gervigreindar og sjálfvirkni.
-
Mat á kostnaði og arðsemi nýrra verkefna og tekjustrauma.
Menntun og reynsla
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
-
Reynsla af fjármálastjórn hjá B2B SaaS-fyrirtæki í hröðum vexti og með alþjóðlega starfsemi.
-
Mjög góð færni í fjárhagslíkanagerð og rekstrargreiningu.
-
Þekking á lykilmælikvörðum áskriftarrekstrar.
-
Reynsla af upplýsingagjöf til erlendra fjárfestingarsjóða er mikill kostur.
-
Reynsla af fjárhagslegum skilum vegna styrkja og endurgreiðslu þróunarkostnaðar.
-
Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
Við bjóðum
-
Lykilhlutverk með ábyrgð og svigrúmi til að móta fjármálastarfsemi félagsins á þinn hátt.
-
Náið samstarf við forstjóra, stjórn og aðra stjórnendur.
-
Vinnuumhverfi sem einkennist af mikilli orku og metnaði.
Umsóknarfrestur er til og með 14.nóv 2026.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Sigurður Jóhannesson, forstjóri, á [email protected].
Enska
Íslenska
