
Framkvæmdastjóri óskast hjá Rammastúdíó
Rammastúdíó við Ármúla 20 leitar að öflugum og drífandi framkvæmdastjóra til að leiða daglegan rekstur fyrirtækisins. Við leitum að einstaklingi sem vill taka ábyrgð á rekstri og áframhaldandi þróun félagsins, en er jafnframt tilbúinn að taka virkan þátt í daglegum verkefnum.
Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri Rammastúdíó og vinnur náið með eigendum félagsins að stefnumótun og þróun þess. Starfið felur meðal annars í sér:
-
Ábyrgð á daglegum rekstri og skipulagi fyrirtækisins
- Smíðavinna og rammagerð
-
Afgreiðslu, sölu og þjónustu við viðskiptavini
-
Umsjón með móttöku, skipulagningu og frágangi verkefna
-
Stefnumótun og ákvarðanatöku um áframhaldandi þróun félagsins
- Reglulega upplýsingagjöf til eigenda um rekstur og stöðu fyrirtækisins
-
Önnur tilfallandi verkefni sem tengjast rekstri fyrirtækisins
Starfið hentar einstaklingi sem vill bera raunverulega ábyrgð á rekstri fyrirtækis og hefur gaman af því að vinna bæði að stærri ákvörðunum og daglegum verkefnum. Við leitum að einstaklingi sem:
-
Sýnir frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði í starfi
-
Er skipulagður, samviskusamur og lausnamiðaður
-
Er þjónustulundaður og á auðvelt með samskipti
-
Er handlaginn og hefur gaman af verklegum verkefnum
-
Hefur áhuga á rekstri, viðskiptum og þróun fyrirtækja
Ekki er gerð krafa um sérstaka menntun eða reynslu af rammagerð. Núverandi framkvæmdastjóri mun sjá um þjálfun og leiðsögn í rammagerð og öðrum sérhæfðum þáttum starfseminnar.
Við leitum fyrst og fremst að réttum einstaklingi sem er tilbúinn að taka ábyrgð, læra starfsemina og taka þátt í að þróa Rammastúdíó áfram.
Boðið er upp á góð kjör fyrir réttan aðila. Áhugasamir eru hvattir til að senda umsókn og stutta kynningu á sjálfum sér ásamt upplýsingum um fyrri reynslu.
Íslenska
Enska










