
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Verslunin á Keflavíkurflugvelli hefur í áratugi verið hluti af ferðalagi fólks til og frá Íslandi. Í maí 2025 tók Ísland Duty Free við rekstrinum af Fríhöfninni og þar með hófst nýr kafli á sterkum grunni. Við tökum á móti hundruðum þúsunda ferðalanga á hverju ári og fyrir marga eru verslanir okkar bæði fyrsta og síðasta viðkoman á landinu. Við erum því ekki bara verslun, heldur hlið inn í Ísland og út í heim.
Ísland Duty Free er hluti af Gebr. Heinemann, þýsku fjölskyldufyrirtæki með höfuðstöðvar í Hamborg sem hefur starfað í ferðaverslun frá árinu 1879 og er í dag eitt af leiðandi fyrirtækjum heims á því sviði. Með því fylgir aðgangur að alþjóðlegri þekkingu, sterkum samböndum við vörumerki og möguleikum til starfsþróunar þvert á landamæri.
Hlutverk okkar er að gera ferðatímann verðmætari með framúrskarandi vöruúrvali, virði og þjónustu. Framtíðarsýn okkar er að skapa eftirminnileg augnablik þar sem Ísland og heimurinn mætast.
Hjá Ísland Duty Free setjum við fólk í fyrsta sæti, erum eitt teymi og gerum vegferð hvers og eins ánægjulega. Við erum ungt fyrirtæki með langa sögu að baki, sem þýðir að fólkið okkar hefur raunveruleg áhrif á það sem við byggjum. Við leggjum áherslu á góða móttöku nýliða, öfluga vöruþekkingu og skýrar starfsþróunarleiðir, meðal annars í gegnum alþjóðlegt tengslanet Heinemann.

Sölufulltrúi
Hefurðu gaman af því að tala við fólk alls staðar að úr heiminum og búa til skemmtilega upplifun fyrir aðra? Þá ertu akkúrat manneskjan sem við viljum fá í teymið okkar hjá Ísland Duty Free!
Við erum hluti af Gebr. Heinemann, fjölskyldufyrirtæki sem starfar á heimsvísu. Hjá okkur er lögð áhersla á góða þjónustu, breitt vöruúrval og góða þjónustu.
Um er að ræða 100% starf þar sem unnið er á 10 tíma vöktum í senn. Vaktir hefjast almennt á bilinu 4:30-6 og 13-15.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Heilsa upp á viðskiptavini að fyrra bragði, bjóða fram aðstoð og hjálpa þeim að finna réttu vörurnar
- Skapa jákvæða og eftirminnilega verslunarupplifun
- Sjá til þess að búðin sé snyrtileg og að vörur séu aðlaðandi fyrir viðskiptavini
- Hjálpa viðskiptavinum að ganga frá kaupum á einfaldan og þægilegan hátt
- Deila þekkingu og vinna með teyminu til að ná sameiginlegum árangri
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu eða þjónustustörfum; þekking á helstu vöruflokkum er kostur
- Mjög góð færni í íslensku og ensku (aukatungumál er kostur)
- Ánægja af sölustörfum og færni í samskiptum við viðskiptavini af ólíkum uppruna
- Frumkvæði og lausnamiðuð hugsun
- Geta til að vinna vaktavinnu
Fríðindi í starfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Fríar rútuferðir eða ökutækjastyrkur
- Niðurgreitt mötuneyti
Auglýsing birt28. september 2026
Umsóknarfrestur12. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHeiðarleikiHreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölufulltrúi - Fullt starf hjá Heimilistækjum
Heimilistæki ehf

Sölumaður varahluta
Hagvangur

Sölumaður Vogabæjar
KS

Söluráðgjafi Enterprise-lausna með áherslu á netlausnir
Advania

Söluráðgjafi Enterprise-lausna
Advania

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Verslunarstjóri Huppu í Garðabæ
Ísbúð Huppu

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Lyfja Reyðarfirði - Forstöðumaður útibús
Lyfja

Lyfja Granda - þjónusta og ráðgjöf
Lyfja

Söludrifinn aðili óskast
Örugg afritun