

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Vilt þú starfa í sérhæfðu og framsæknu starfsumhverfi?
Dagdeild gigtarsjúkdóma leitar að hjúkrunarfræðingi til starfa á innrennsliseiningu deildarinnar. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf þar sem veitt er sérhæfð meðferð með nýjustu líftæknilyfjum og mótefnameðferðum fyrir einstaklinga með gigtar-, lungna-, tauga-, ónæmis- og nýrnasjúkdóma.
Á deildinni starfar þverfaglegt teymi hjúkrunarfræðinga, lækna, sjúkraliða og ritara sem vinnur saman að því markmiði að veita framúrskarandi og örugga þjónustu. Vinnuumhverfið einkennist af fagmennsku, samvinnu, metnaði og góðum starfsanda.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á sérhæfðri meðferð og nýjungum í heilbrigðisþjónustu, sýnir frumkvæði og ábyrgð í starfi og nýtur þess að vinna í teymi. Starfið býður upp á einstakt tækifæri til að kynnast þeim framförum sem orðið hafa í meðferð langvinnra sjúkdóma með tilkomu líftæknilyfja og jákvæðum áhrifum þeirra á lífsgæði sjúklinga.
Deildin er staðsett í nýuppgerðu og nútímalegu húsnæði á Eiríksstöðum við Eiríksgötu 5. Þar starfar öflugt heilbrigðisstarfsfólks sem byggir starf sitt á gagnreyndri þekkingu, gæðum og stöðugri þróun þjónustunnar.
Við leggjum ríka áherslu á vandaða móttöku og markvissa aðlögun nýrra starfsmanna undir handleiðslu reyndra hjúkrunarfræðinga.
Starfshlutfall og upphaf starfa eru samkvæmt samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Við hvetjum hjúkrunarfræðinga með áhuga á sérhæfðri meðferð og þverfaglegu samstarfi til að sækja um og verða hluti af samhentu og metnaðarfullu teymi sem vinnur að því að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu.
Íslenska
































