Vistor
Vistor
Vistor

Viðskiptastjóri hjá Vistor

Vistor leitar að drífandi og metnaðarfullum einstaklingi í starf viðskiptastjóra.

Við leitum að einstaklingi sem hefur gaman af samskiptum, vill byggja upp sterk tengsl og hefur metnað fyrir árangri og að hafa áhrif. Starfið felur í sér markaðssetningu og sölu lyfja ásamt uppbyggingu traustra tengsla við heilbrigðisstarfsfólk. Þú munt vinna náið með heilbrigðisstarfsfólki, samstarfsaðilum og alþjóðlegum birgjum við að miðla þekkingu, þróa viðskiptasambönd og skapa ný tækifæri.

Hvort sem þú ert nýútskrifaður nemi eða með reynslu að baki skiptir mestu máli að þú sért forvitin/n, lausnamiðuð/lausnamiðaður og tilbúin/n að læra, taka frumkvæði og ná árangri í góðu teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra og þróa markaðs- og viðskiptastarf á sviði frumlyfja
  • Byggja upp og efla traust tengsl við heilbrigðisstarfsfólk og aðra hagsmunaaðila
  • Miðla faglegri þekkingu með fundum, kynningum, ráðstefnum og fræðsluverkefnum
  • Greina og þróa ný tækifæri og taka virkan þátt í viðskiptaþróun
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á heilbrigðissviði
  • Framúrskarandi samskipta- og tengslamyndunarhæfni
  • Frumkvæði, drifkraftur, lausnamiðað hugarfar og metnaður til að ná árangri
  • Áhugi á heilbrigðismálum og löngun til að skapa verðmæti fyrir viðskiptavini
  • Áhugi á að nýta sjálfvirkni og stafrænar lausnir til að bæta ferla og auka árangur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti
Auglýsing birt9. október 2026
Umsóknarfrestur16. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hörgatún 2, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MarkaðsgreiningPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Skilgreining markhópaPathCreated with Sketch.Sölumennska
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar