Sýn
Sýn
Sýn

Viðskiptastjóri Já

Sýn óskar eftir að ráða söludrifinn, kraftmikinn, framsækinn og þjónustulundaðan einstakling í stöðu viðskiptastjóra Já.

Helstu verkefni felast í að styrkja og viðhalda núverandi viðskiptasamböndum, ásamt því að sækja nýja viðskiptavini. Starfið felur meðal annars í sér að auka sölu, vera tengiliður Já út á markaðinn gagnvart núverandi viðskiptavinum, kynna vöruframboð Já og greina þarfir markaðarins.

Um er að ræða krefjandi og ábyrgðarmikið framtíðarstarf sem kallar á sjálfstæð og fagleg vinnubrögð, hæfni til að vinna undir álagi og gott samstarf í frábæru teymi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Auglýsingasala og ráðgjöf til viðskiptavina Já
  • Viðskiptastýring
  • Vera tengiliður til viðskiptavina fyrir vöruframboð Já
  • Tilboðs- og samningagerð
  • Utanumhald og þjónusta núverandi viðskiptavini
  • Endurnýjun samninga og stofna til nýrra viðskiptasambanda
  • Greiningar á markaðnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Þekking og reynsla af sölumennsku, þjónustu og tengslamyndun.
  • Menntun sem nýtist í starfi er æskileg en ekki nauðsynleg
  • Reynsla af sölu á fyrirtækjamarkaði er góður kostur
  • Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Skilningur á viðskiptaumhverfi fyrirtækja
  • Team Player
  • Góð íslenskukunnátta

Hvað höfum við að bjóða þér?

  • Frábæra vinnufélaga
  • Framúrskarandi vinnuaðstöðu
  • Mötuneyti á heimsmælikvarða
  • Internet- og farsímaáskrift
  • Streymisveitu Sýnar og Viaplay
  • Árlegan heilsustyrk
  • Árlegan símtækjastyrk
  • Samgöngustyrk fyrir þá sem nýta sér vistvæna ferðamáta til og frá vinnu
  • Öflugt starfsmannafélag og frábæra vinnustaðamenningu

Hver erum við?

Sýn er leiðandi afl á sviði fjarskipta og fjölmiðlunar á Íslandi. Hjá Sýn sameinum við það besta úr heimi tækni og afþreyingar og breytum hversdagsleikanum í upplifun. Það er betra að vera með Sýn – hvort sem þú ert að horfa, hlusta, vafra eða vinna.

Hjá Sýn leggjum við áherslu á að starfsfólk upplifi vellíðan í vinnu. Það gerum við með því að búa starfsfólki framúrskarandi vinnuaðstöðu, huga að líkamlegri og andlegri heilsu þess og gefa því möguleika á sveigjanleika í vinnu. Við viljum að fólki líði vel í vinnunni, upplifi sig sem hluta af sterkri liðsheild, fái útrás fyrir sköpunarþörf sína og tækifæri til að takast á við verkefni þar sem styrkleikar þeirra fá helst notið sín. Sýn vill þannig stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og góðu sjálfstrausti starfsfólks og að starfsfólk sýni frumkvæði í starfi. Við trúum því að fyrirtækinu gangi best þegar starfsfólkið er upp á sitt BESTA.

Við hvetjum áhugasöm af öllum kynjum til að sækja um í gegnum ráðningavefinn okkar. Umsóknarfrestur er til og með 18. október 2026. Umsóknir eru rýndar jafnóðum og þær berast.

Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á [email protected]

Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur18. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar