

Tæknilegur sölu- og þjónustufulltrúi ProLan
ProLan ehf. leitar að öflugum og áreiðanlegum einstaklingi í fjölbreytt starf við sölu, þjónustu og ráðgjöf.
Við erum ekki að leita að hefðbundnum sölumanni sem situr og bíður eftir að síminn hringi. Við leitum að manneskju sem hefur frumkvæði, sér tækifæri og hefur áhuga á að taka þátt í að byggja ProLan enn frekar upp á Íslandi.
Starfið er mjög fjölbreytt. Hluti þess snýr að ryðvarnarþjónustunni okkar, þar sem þú ert í beinum samskiptum við viðskiptavini, svarar fyrirspurnum, veitir ráðgjöf, sérð um bókanir og tekur á móti og afhendir bifreiðar.
Stór hluti starfsins er einnig virk sala á ProLan vörum. Þar viljum við fá manneskju sem er tilbúin að leita að nýjum viðskiptavinum, hafa samband við fyrirtæki, kynna vörurnar okkar, finna nýja notkunarmöguleika og fylgja sölunni eftir. Markmiðið er ekki bara að afgreiða þá sem hafa samband við okkur heldur líka að byggja upp ný og góð viðskiptasambönd.
ProLan er langt frá því að vera eingöngu fyrir fólksbíla. Vörurnar eru notaðar þar sem verja þarf málma og búnað gegn ryði, tæringu og erfiðum aðstæðum og þær hafa einnig fjölbreytta notkun við smurningu og viðhald. Mögulegir viðskiptavinir eru því meðal annars í bílageiranum, sjávarútvegi, á bátum og skipum, í iðnaði, málmiðnaði, flutningum, vinnuvélum, verktakastarfsemi og landbúnaði.
Það er frábært ef þú kemur með reynslu eða þekkingu úr einhverjum af þessum geirum, eða þekkir vel til bíla, véla, málma, tæringar, smurefna eða tæknilegra vara. Þú þarft hins vegar ekki að þekkja ProLan fyrir. Við kennum þér á vörurnar, eiginleika þeirra og mismunandi notkun.
Mjög góð íslenska skiptir okkur miklu máli í þessu starfi. Þú munt vinna náið með enskumælandi þjónustufulltrúa okkar sem sinnir einnig vefsíðu og markaðsmálum. Hluti starfsins verður því að aðstoða með íslensk samskipti, fara yfir texta, hjálpa til við þýðingar og sjá til þess að íslenskt efni sem fer frá fyrirtækinu sé rétt, eðlilegt og vel orðað.
Við viljum helst finna manneskju sem Við viljum helst finna manneskju sem sér hvað þarf að gera, tekur frumkvæði og fylgir hlutunum eftir. Ef þú sérð sölutækifæri viljum við að þú grípir það. Ef fyrirtæki gæti haft not fyrir ProLan viljum við að þú hafir samband. Ef viðskiptavinur bíður eftir svari eða tilboði viljum við að þú sjáir til þess að málið klárist.
Fyrir réttan einstakling er þetta starf sem hægt er að móta og þróa. Við erum að leita að manneskju sem vill verða mikilvægur hluti af ProLan og getur með tímanum tekið meiri ábyrgð á sölu, þjónustu og fyrirtækjaviðskiptum.
Starfsstöð er hjá ProLan ehf., Suðurhellu 5, 221 Hafnarfirði.
- Sala á ryðvarnarþjónustu ProLan og ráðgjöf til viðskiptavina um hvaða þjónusta hentar hverri bifreið.
- Virk sala á ProLan vörum til einstaklinga, fyrirtækja, verkstæða og annarra fagaðila.
- Leita að nýjum fyrirtækjaviðskiptavinum og kynna fyrir þeim vörur ProLan og fjölbreytta notkunarmöguleika þeirra.
- Byggja upp og viðhalda góðum langtímaviðskiptum við fyrirtæki og aðra viðskiptavini.
- Gera tilboð, fylgja þeim eftir og halda utan um sölutækifæri þar til niðurstaða liggur fyrir.
- Fylgja fyrirspurnum eftir og hafa aftur samband við viðskiptavini þegar þess er þörf svo sölutækifæri glatist ekki.
- Taka á móti viðskiptavinum og bifreiðum sem koma í ryðvarnarþjónustu, taka við lyklum og skrá nauðsynlegar upplýsingar.
- Afhenda bifreiðar að lokinni þjónustu og fara yfir framkvæmd þjónustunnar með viðskiptavinum þegar þess er þörf.
- Sjá um bókanir, breytingar á bókunum, afbókanir og eftirfylgni með viðskiptavinum.
- Svara síma, tölvupóstum og öðrum fyrirspurnum og sjá til þess að viðskiptavinir fái skýr og góð svör.
- Kynna sér ProLan vörurnar vel og geta ráðlagt viðskiptavinum um rétta vöru og notkun eftir aðstæðum og þörfum.
- Fylgja eftir núverandi fyrirtækjaviðskiptavinum og söluaðilum og vera í reglulegu sambandi við þá eftir þörfum.
- Koma auga á nýja markaði og notkunarmöguleika fyrir ProLan, meðal annars innan bílageirans, sjávarútvegs, iðnaðar, flutninga, vinnuvéla, málmiðnaðar, landbúnaðar og annarra starfsgreina.
- Taka frumkvæði að sölu og samskiptum við mögulega viðskiptavini en ekki eingöngu bíða eftir fyrirspurnum sem berast fyrirtækinu.
- Aðstoða og vinna náið með enskumælandi þjónustufulltrúa fyrirtækisins, sérstaklega þegar þörf er á íslensku í samskiptum við viðskiptavini, fyrirtæki og samstarfsaðila.
- Aðstoða sama starfsmann, sem einnig sinnir vefsíðu og markaðsmálum, með íslenska hluta efnisins, textagerð, þýðingar og yfirlestur.
- Yfirfara, leiðrétta og bæta íslenskan texta á vefsíðu og tryggja að hann sé skýr, eðlilegur og málfarslega réttur.
- Aðstoða við gerð og yfirferð íslenskra vörulýsinga, þjónustutexta, auglýsinga, kynningarefnis, samfélagsmiðla og annars efnis sem fyrirtækið birtir.
- Þýða og staðfæra efni úr ensku yfir á góða og eðlilega íslensku þegar þess er þörf, þannig að textinn sé lagaður að íslenskum lesendum en ekki eingöngu þýddur orðrétt.
- Sjá til þess að íslensk samskipti og efni sem fara frá fyrirtækinu séu skýr, rétt og fagleg.
- Halda góðu skipulagi á verkefnum, fyrirspurnum, tilboðum og eftirfylgni svo ekkert gleymist.
- Vinna sjálfstætt, sjá hvað þarf að gera og geta klárað dagleg verkefni án þess að þurfa stöðugt fyrirmæli um næsta skref.
- Vinna náið með öðrum starfsmönnum ProLan og aðstoða við önnur sölu- og þjónustutengd verkefni þegar þörf er á.
- Mjög góð íslenska, bæði töluð og rituð, er skilyrði. Viðkomandi þarf að geta átt góð og eðlileg samskipti við viðskiptavini og skrifað íslenskan texta sjálfstætt.
- Viðkomandi þarf að geta svarað viðskiptavinum í síma, tölvupósti og skilaboðum án þess að þurfa að reiða sig á gervigreind (AI) til að semja eða leiðrétta svör.
- Reynsla af sölu er mikill kostur, sérstaklega reynsla af fyrirtækjasölu eða sölu á tæknilegum vörum.
- Við leitum að manneskju sem á auðvelt með að tala við fólk, er þjónustulunduð og óhrædd við að hafa samband við nýja viðskiptavini.
- Mikilvægt er að geta fylgt hlutunum eftir. Ef tilboð hefur verið sent, viðskiptavinur bíður eftir svari eða sölutækifæri kemur upp þarf viðkomandi að sjá til þess að málið klárist.
- Viðkomandi þarf að geta unnið sjálfstætt, séð hvað þarf að gera og tekið frumkvæði án þess að þurfa stöðugt að fá fyrirmæli um næsta verkefni.
- Góð skipulagshæfni er mikilvæg þar sem halda þarf utan um bókanir, fyrirspurnir, tilboð, viðskiptavini og eftirfylgni.
- Tæknileg menntun eða starfsreynsla er mikill kostur. Þar getur til dæmis verið um að ræða bifvélavirkjun, vélvirkjun, vélstjórn, málmiðngreinar, aðrar iðngreinar eða sambærilega reynslu.
- Þekking á bílum, vélum, málmum, ryði og tæringu, sjávarútvegi, iðnaði, vinnuvélum, smurefnum, efnavörum eða öðrum tæknilegum vörum er mikill kostur.
- Menntun eða reynsla úr sölu, viðskiptum eða markaðsmálum kemur einnig vel til greina.
- Við horfum bæði til menntunar og reynslu. Góð og viðeigandi starfsreynsla getur því vegið á móti formlegri menntun.
- Góð almenn tölvukunnátta er nauðsynleg og viðkomandi þarf að eiga auðvelt með að læra á ný kerfi.
- Reynsla af vefsíðum, stafrænu efni eða markaðsmálum er kostur. Hluti starfsins er að vinna með enskumælandi starfsmanni okkar sem sér um vefsíðu og markaðsmál og aðstoða með íslenska texta, þýðingar og yfirlestur.
- Viðkomandi þarf að skilja ensku vel og geta tekið enskan texta og komið honum yfir á góða og eðlilega íslensku, en ekki bara þýtt hann orð fyrir orð.
- B-réttindi eru nauðsynleg. C-réttindi eru kostur.
- Við leggjum mikla áherslu á stundvísi, áreiðanleika og að hægt sé að treysta því að verkefnum sé fylgt eftir og þau kláruð.
- Viðkomandi þarf að geta unnið vel með öðrum en jafnframt tekið ábyrgð á sínum verkefnum og unnið sjálfstætt.
Þú þarft ekki að þekkja ProLan fyrir.
Við kennum þér á vörurnar, hvernig þær virka, hvar þær eru notaðar og þjónustuna okkar.
Við erum fyrst og fremst að leita að réttu manneskjunni - einhverjum sem er góður í sölu og samskiptum, hefur tæknilegan áhuga, lærir hratt, tekur frumkvæði og sem við getum treyst á.
- Fjölbreytt starf þar sem dagarnir eru ekki allir eins.
- Góð þjálfun í ProLan vörunum og þjónustunni okkar.
- Tækifæri til að læra meira um tæknilega sölu, ryð- og tæringarvarnir og fjölbreytta notkun ProLan.
- Frelsi til að koma með hugmyndir og taka þátt í að þróa starfið áfram.
- Möguleiki á að taka meiri ábyrgð eftir því sem þú kynnist starfinu og fyrirtækinu betur.
- Tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu ProLan og vaxa með fyrirtækinu.
- Góð vinnuaðstaða í nýju húsnæði okkar að Suðurhellu 5 í Hafnarfirði.
- Við leggjum áherslu á gott samstarf, hreinskilin samskipti og að fólk geti treyst hvert á annað.
Danska
Íslenska
Enska
Spænska










