Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í kviðarholsteymi

Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings í kviðarholsteymi Landspítala sem staðsett er á almennri göngudeild 10E við Hringbraut.

Í kviðarholsteyminu starfar öflugur hópur fagfólks sem vinnur af miklum áhuga við að efla og þróa þjónustu við sjúklinga með langvinna kviðarholssjúkdóma. Teymið sinnir eftirfarandi verkefnum:

  • Teymið sinnir sjúklingum fyrir og eftir kviðarholsaðgerðir

  • Sárameðferðum sinnt eftir útskrift af deildum spítalans

  • Gerðar eru minniháttar aðgerðir í staðdeyfingu og sýnatökur

  • Móttaka vegna vandamála í grindarbotni

  • Eftirfylgni eftir hjáveituaðgerð

  • Stómaþegum sinnt með ráðgjöf, kennslu og stuðningi

Starfið er því afar fjölbreytt og krefjandi og gefur mikla möguleika til starfsþróunar.

Á deildinni er markvisst unnið að umbótum og framþróun og einkennist vinnuandinn af samvinnu, metnaði og góðum liðsanda. Hér er tækifæri fyrir framsækinn og metnaðarfullan hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á að vinna í teymi en einnig sjálfstætt og af frumkvæði. Í boði er einstaklingsmiðuð aðlögun undir leiðsögn reyndra hjúkrunarfræðinga. Starfshlutfall er 60-100% dagvinna og er starfið laust nú þegar eða eftir nánara samkomulagi.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Einstaklingsmiðuð hjúkrunarmeðferð og heildstæð þjónusta við sjúklinga með sjúkdóma í kviðarholi
  • Þátttaka í teymisvinnu í greiningarferli við meðferð og eftirfylgd sjúklinga í gegnum sjúkdómsferlið
  • Þróun ferla og nýrra verkefna á göngudeild kviðarholssjúklinga
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan deildar og í samvinnu við legudeildir sérgreina
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
  • Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
  • Áhugi á að starfa í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi
  • Góð íslenskukunnátta áskilin
Auglýsing birt21. október 2026
Umsóknarfrestur2. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (33)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Læknir - Tímabundið starf
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf - Hera sérhæfð líknarþjónusta
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri í aðfangaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á vöknun í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á brotaendurhæfingardeild Landakoti
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri á geðgjörgæslu
Landspítali
Landspítali
Íþróttafræðingur í Batasetri geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgöngu- og sængurlegudeild
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali