

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Glæsibæ
Heilsugæslan Glæsibær leitar að hjúkrunarfræðingi í fjölbreytt og spennandi starfsumhverfi. Um er að ræða 80-100% tímabundið starf til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk.
Á Heilsugæslunni Glæsibæ starfar öflugur hópur fagfólks sem leggur áherslu á samvinnu, fagmennsku og góða þjónustu. Við bjóðum upp á hvetjandi vinnuumhverfi þar sem frumkvæði, sjálfstæði og tækifæri til starfsþróunar fá að njóta sín.
Hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins eru fjölbreytt tækifæri til faglegrar þróunar, meðal annars með starfsþróunarári og sérnámi í heilsugæsluhjúkrun. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða aðlögun og góðan stuðning við nýja starfsmenn.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
- Opin og bókuð móttaka
Í móttöku sinna hjúkrunarfræðingar fólki á öllum aldri, bráðaerindum, bókuðum tímum og símaráðgjöf ásamt því að svara skilaboðum í gegnum Heilsuveru. Í bókaðri móttöku er tekið á móti erindum s.s. ferðamannaheilsuvernd, sárameðferð, lyfjagjöfum ásamt heilsueflandi móttöku.
- Heilsueflandi móttaka
Hjúkrunarfræðingur metur heilsu skjólstæðinga og þörf þeirra á heilsueflingu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning, fræðslu og eftirfylgni ásamt leiðsögn um heilbrigðikerfið og þjónustuúrræði.
- Skólahjúkrun
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og foreldra eftir þörfum hverju sinni.
- Ung- og smábarnavernd
Markmið ung- og smábarnaverndar er að efla heilsu, vellíðan og þroska ungra barna með reglulegum heilsufarsskoðunum ásamt stuðningi og heilbrigðisfræðslu til fjölskyldna þeirra. Áhersla er lögð á stuðning við fjölskylduna. Fylgst er með þroska barna frá fæðingu til skólaaldurs.
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur
- Reynsla af bráða- og slysamóttöku er kostur
- Þekking og áhugi á forvarnar- og heilsueflingarstarfi kostur
- Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Reynsla og áhugi á teymisvinnu
- Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska















