Náttúruverndarstofnun
Náttúruverndarstofnun

Viltu leiða náttúruvernd á Norðurlandi?

Umdæmisstjóri og þjóðgarðsvörður

Náttúruverndarstofnun leitar að öflugum leiðtoga í starf umdæmisstjóra náttúruverndarsvæða á Norðurlandi og þjóðgarðsvarðar á norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs.
Í umdæminu eru nokkrar af stórbrotnustu náttúruperlum landsins, meðal annars Askja og Herðubreiðarlindir í Vatnajökulsþjóðgarði ásamt Mývatni, Laxá og Goðafossi og önnur friðlýst svæði á Norðurlandi.
Umdæmisstjóri/þjóðgarðsvörður ber ábyrgð á daglegum rekstri umdæmisins, rekstri gestastofu á Gíg, stýringu starfsfólks, stefnumótun og þróun svæðanna. Meginmarkmið starfssins er að tryggja verndargildi svæðanna til framtíðar samhliða því að stuðla að góðri upplifun gesta.
Starfið felur í sér víðtækt samstarf við starfsfólk stofnunarinnar, sveitarfélög, nærsamfélag og aðra hagaðila. Umdæmisstjóri/þjóðgarðsvörður er hluti af stjórnendateymi Náttúruverndarstofnunar og vinnur náið með öðrum umdæmisstjórum að sameiginlegum markmiðum stofnunarinnar.
Við leitum að einstaklingi með leiðtogahæfni, frumkvæði og metnað til að þróa starfsemina og efla samstarf. Um er að ræða fjölbreytt, sjálfstætt og krefjandi stjórnunarstarf þar sem tækifæri gefst til að láta gott af sér leiða í þágu náttúruverndar.

Starfsstöð er í Gíg á Skútustöðum í Mývatnssveit.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Forysta og ábyrgð á starfsemi og rekstri umdæmisins, þar með talið norðurhálendi Vatnajökulsþjóðgarðs
  • Stjórnun starfsfólks, mannauðsmál og uppbygging öflugs teymis
  • Fjárhagsáætlunargerð, rekstrarstýring og eftirfylgni
  • Stefnumótun og þróun friðlýstra svæða með áherslu á náttúruvernd
  • Ábyrgð á uppbyggingu og viðhaldi innviða á áfangastöðum
  • Samstarf við sveitarfélög, nærsamfélag og aðra hagaðila
  • Þátttaka í þverfaglegu samstarfi og þróun starfsemi Náttúruverndarstofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfsfærni
  • Leiðtogahæfileikar
  • Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum
  • Þekking á viðkomandi landssvæði er kostur
  • Þekking á starfsemi friðlýstra svæða er kostur
  • Þekking á stjórnsýslu er kostur
  • Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt9. nóvember 2026
Umsóknarfrestur23. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skútustaðir, 660 Mývatn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar