

Geislafræðingur eða lífeindafræðingur við hjartaómun á hjartarannsóknarstofu
Laust er til umsóknar starf lífeindafræðings eða geislafræðings við hjartaómanir á hjartarannsóknarstofu Landspítala. Á einingunni starfar 25 manna samhentur hópur í þverfaglegu teymi og í nánu samstarfi við aðra faghópa.
Starfsemi hjartarannsóknarstofu er fjölbreytt og enginn dagur er eins. Við þjónustum sjúklinga sem ýmist eru inniliggjandi eða koma frá göngudeildum.
Starfshlutfall er 80-100%, unnið er í dagvinnu. Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Ráðið er í starfið frá 1. desember 2026 eða samkvæmt nánara samkomulagi. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum góða einstaklingshæfða aðlögun.
Íslenska












































