

Heilbrigðismenntað starfsfólk í 50% starf í Ylju, skaðaminnkunarúrræði Rauða krossins
Auglýst er eftir heilbrigðismenntuðu starfsfólki í 50% starf í Ylju neyslurými, skaðaminnkunarúrræði Rauða krossins.
Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks í viðkvæmri stöðu?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, læknum/læknanemum og bráðatæknum með tilskylda reynslu og þekkingu í hlutastarf í skaðaminnkunarverkefni félagsins, Ylju.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir rétta einstaklinga sem hafa áhuga á skaðaminnkun, mannréttindum og notendasamráði.
Hvað er Ylja?
✔️ Ylja er fyrsta örugga rýmið til að nota vímefni á Íslandi – skaðaminnkandi úrræði fyrir einstaklinga sem nota vímuefni í æð og/eða reykja ópíóíða eða örvandi efni.
✔️ Rekstur Ylju byggir á samstarfssamningi Rauða krossins og Sjúkratrygginga Íslands.
✔️ Markmið verkefnisins er að auka lífsgæði, bæta heilsufar og styðja við jákvæðar breytingar þeirra sem nota vímuefni í æð og/eða reykja opíóíða eða örvandi efni.
✔️ Neyslurými eru lagalega vernduð umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta neytt ávana- og vímuefna undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks, með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum.
✔️ Þessi úrræði eru starfrækt víða um heim og hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning bæði fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita heilbrigðisþjónustu í Ylju með áherslu á skaðaminnkun og heilsuvernd
- Mæta einstaklingum út frá skaðaminnkandi hugmyndafræði og einstaklingsmiðaðri nálgun
- Þróa og innleiða verklagsreglur um heilbrigðisverklag fyrir Ylju í samstarfi við hjúkrunarfræðing skaðaminnkunarteymisins
- Veita ráðgjöf, sálfélagslegan stuðning og samveru til einstaklinga sem leita í Ylju
- Tengiliður í heilbrigðis- og félagsþjónustu
- Önnur tilfallandi verkefni tengd skaðaminnkun
Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að
- Starfsmaður með menntun á sviði heilbrigðismenntunar t.d hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, læknar/læknanemar og bráðatæknar með tilskylda reynslu og þekkingu
- Góð þekking á skaðaminnkandi hugmyndafræði er skilyrði
- Góð samskiptahæfni og reynsla af vinnu með fólki með fjölþættan vanda er kostur
- Þekking á málefnum og starfi Rauða krossins er kostur
- Umburðalyndi og virðing fyrir fólki sem notar vímuefni
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál eru kostur
Hvað býður Rauði krossinn upp á?
🚴 Samgöngustyrkur – Stuðningur við vistvænar samgöngur
🏋️ Líkamsræktarstyrkur – Heilsueflandi stuðningur
📅 Umsóknarfrestur: 10.12 - Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.
📩 Nánari upplýsingar:
Dóra Björt Guðjónsdóttir, deildarstjóri Rauða krossins á höfuðborgarsvæðinu
✉️ [email protected]
Íslenska
Enska










