

Sjúkraliði óskast á brotaendurhæfingardeild aldraðra
Langar þig að starfa við það að bæta lífsgæði fólks á hverjum degi? Við hjálpum fólki ekki bara að jafna sig eftir brot, við hjálpum því að komast aftur heim.
Á brotaendurhæfingardeild starfar öflugt þverfaglegt teymi sem styður einstaklinga eftir beinbrot og önnur áföll við að endurheimta færni og sjálfstæði. Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum sjúkraliða sem vill taka virkan þátt í endurhæfingu og umönnun aldraðra. Sjúkraliðar á brotaendurhæfingu sinna fjölbreyttum og gefandi verkefnum ásamt því að taka þátt í öflugu þverfaglegu samstarfi. Við leggjum jafnframt áherslu á stöðuga fræðslu og faglega þróun í starfi.
Deildin býr yfir sterkri liðsheild og góðum starfsanda þar sem er lögð áhersla á stuðning, reglulega handleiðslu og góðar móttökur nýs starfsfólks.
Landakot er inngildandi vinnustaður þar sem fjölbreytileiki íslensks samfélags fær að njóta sín og mannvirðing er höfð að leiðarljósi.
Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
- Umönnun einstaklinga í samvinnu við aðrar fagstéttir
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka í þróun og umbótum í starfsemi deildarinnar
- Kennsla og umsjón með sjúkraliðanemum
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Góð íslenskukunnátta áskilin
Íslenska




































