

Þroskaþjálfi - iðjuþjálfi
Specialisterne (Sérfræðingarnir ses) óska eftir að ráða öflugan þroskaþjálfa eða iðjuþjálfa sem mun bera ábyrgð á gerð einstaklingsbundinna þjálfunaráætlana fyrir þjónustuþega. Viðkomandi mun einnig gegna stóru hlutverki í þróun og áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar á Íslandi.
• Taka viðtöl við umsækjendur um þjónustu Specialisterne og forráðamenn þeirra.
• Meta starfsfærni og þjálfunarúrræði þjónustuþega.
• Vinna að gerð, framkvæmd og endurskoðun einstaklingsbundinna áætlana.
• Veita einstaklingsmiðaðan stuðning með áherslu á sjálfstæði, virkni, virðingu og viðurkenningu.
• Taka virkan þátt í faglegri mótun og þróun starfseminnar.
• Veita samstarfsfólki faglega ráðgjöf, fræðslu og leiðsögn.
• Nýta fagþekkingu til að greina tækifæri til umbóta og þróunar þjónustunnar.
• Heimsækja vinnustaði (fyrirtæki og opinberar stofnanir) til að afla upplýsinga um störf við hæfi fyrir þjónustuþega Specialisterne.
• Veita vinnustöðum ráðgjöf og stuðning vegna starfsmanna með sérþarfir eða áskoranir vegna fötlunar.
• Menntun sem þroskaþjálfi, iðjuþjálfi eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af starfi með fólki á einhverfurófi eða með sértækar þarfir er æskileg.
• Góð samskipta- og samstarfshæfni og hæfni til að virkja fólk með sér.
• Frumkvæði og áhugi á faglegri þróun.
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
• Góð íslenskukunnátta er skilyrði ásamt grunnfærni i ensku
Við bjóðum:
• Tækifæri til að hafa áhrif á mótun og þróun starfseminnar.
• Fjölbreytt og faglega krefjandi verkefni.
• Starfsumhverfi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, frumkvæði og þróun.
Íslenska
Enska










