Þorláksskóli
Þorláksskóli
Þorláksskóli

Þorláksskóli leitar að fagfólki eða stuðningsfulltrúa

Okkur vantar góða manneskju í hópinn okkar.

Þorláksskóli er lítill, sérhæfður grunnskóli í Garðabæ fyrir einhverf börn. Við leitum að hlýjum, traustum og áhugasömum liðsfélaga sem vill taka virkan þátt í að skapa öruggan, fyrirsjáanlegan og góðan skóladag fyrir nemendur okkar.

Við tökum vel á móti umsóknum frá þroskaþjálfum, iðjuþjálfum, kennurum og öðru fagfólki með menntun sem nýtist í skólastarfinu, sem og stuðningsfulltrúum og fólki með viðeigandi reynslu. Starfssvið og ábyrgð taka mið af menntun og reynslu þess sem ráðinn verður.

Í skólastarfinu byggjum við á TEACCH og DIR/Floortime og vinnum út frá taugaþroskavænni og áfallamiðaðri nálgun. Áhersla er lögð á öryggi, tengslamyndun, skýra og fyrirsjáanlega umgjörð, skynúrvinnslu og einstaklingsmiðað nám. Við mætum hverju barni á þess forsendum og leggjum okkur fram um að skilja tjáningu þess og þarfir.

Um er að ræða 100% dagvinnustarf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bein vinna með nemendum í námi, leik og daglegu skólastarfi.
  • Þátttaka í skipulagi og framkvæmd skóladagsins.
  • Stuðningur við tjáskipti, sjálfstæði og þátttöku nemenda.
  • Aðstoð við daglegar athafnir eftir þörfum hvers barns.
  • Aðlögun verkefna og umhverfis að þörfum nemenda.
  • Stuðningur við skynúrvinnslu og líðan.
  • Náið samstarf við annað starfsfólk skólans.
  • Þátttaka í áframhaldandi mótun og uppbyggingu skólastarfsins.

Nánari verkefni og fagleg ábyrgð verða skilgreind með hliðsjón af menntun og reynslu þess sem ráðinn verður.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði kennslu, þroskaþjálfunar, iðjuþjálfunar, uppeldis- og menntunarfræði eða skyldra greina er kostur en ekki skilyrði.
  • Reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum, helst börnum, er æskileg.
  • Áhugi á starfi með einhverfum börnum og virðing fyrir þörfum þeirra, tjáningu og fjölbreytileika.
  • Hlýja, þolinmæði og hæfni til að mynda traust tengsl.
  • Ábyrgð, stundvísi og áreiðanleiki.
  • Hæfni til að halda ró og yfirsýn þegar aðstæður verða krefjandi.
  • Góð samstarfshæfni og vilji til að taka virkan þátt í teymisvinnu.
  • Frumkvæði og áhugi á að læra og tileinka sér starfshætti skólans.
  • Góð íslenskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.

Þekking á TEACCH, DIR/Floortime, óhefðbundnum tjáskiptaleiðum eða skynúrvinnslu er kostur en ekki skilyrði.

Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og innihaldsríkt starf í litlum og persónulegum skóla.
  • Náið samstarf og stuðningur frá samstarfsfólki.
  • Fræðsla og handleiðsla í starfi.
  • Tækifæri til að byggja upp þekkingu og reynslu á sviði einhverfu.
  • Tækifæri til að hafa áhrif á mótun og uppbyggingu skólans.
  • Starfsumhverfi þar sem öryggi, virðing og vellíðan eru í fyrirrúmi.
Auglýsing birt18. nóvember 2026
Umsóknarfrestur14. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar