
Frístundamiðstöðin Miðberg

Aðstoðarforstöðumaður í frístundaheimili
Frístundaheimilið Bakkasel leitar að aðstoðarforstöðumanneskju í 100% starf. Um tímabundna ráðningu er að ræða. Frístundaheimilin veita 6-9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frístundastarfs SFS og menntastefnu Reykjavíkurborgar eru höfð að leiðarsljósi.
Ráðning hefst sem fyrst og er til 21.ágúst 2027. Möguleiki er áframhaldandi ráðningu.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með daglegri starfsemi frístundaheimils í samvinnu við forstöðumann.
- Skipulagning frístundaheimilsins í samráði við börn og starfsfólk.
- Leiðbeina og taka þátt í starfi með börnum.
- Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
- Þátttaka í að móta stefnu og framtíðarsýn.
- Að veita starfsmönnum leiðsögn um framkvæmd vinnunnar og stuðla að lýðræðislegum starfsháttum og góðum starfsanda.
- Er staðgengill forstöðumanns.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
- Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða mikil starfs-eða stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
- Reynsla af starfi með börnum.
- Reynsla af félags-og tómstundastarfi
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska í vinnubrögðum.
- Skipulagshæfileikar og fjölbreytt áhugasvið sem nýtist í starfi.
- Almenn tölvu- og samskiptamiðla kunnátta.
- Góð íslensku kunnátta í máli og riti. C1
- Góð enskukunnátta.
Auglýsing birt12. nóvember 2026
Umsóknarfrestur20. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Arnarbakki 1-3, 109 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Náttúrufræði- og umsjónarkennari á unglingastigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennarar – Leikskólinn Hörðuvellir
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari óskast í Efstahjalla
Efstihjalli

Tómstundaleiðbeinandi - Aldan - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær

Verkefnastjóri frístundastarfs í Krikaskóla
Krikaskóli

Barnaskóli Hjallastefnunnar í Garðabæ, Vífilsstöðum - Umsjónarkennsla á yngsta stigi
Hjallastefnan

Sérkennslustjóri - Leikskólinn Hnoðraból
Borgarbyggð

Lindaskóli óskar eftir smíðakennara í tímabundið starf
Lindaskóli

Stuðningsfulltrúi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Leikskólakennari við leikskólann Kærabæ, Fáskrúðsfirði
Leikskólinn Kæribær

Forfallakennari óskast í Kársnesskóla
Kársnesskóli

Frístundaleiðbeinandi í Vatnsendaskóla
Vatnsendaskóli