

Frístundaleiðbeinandi í Vatnsendaskóla
Vatnsendaskóli er heildstæður grunnskóli með 530 nemendur og tæplega 90 starfsmenn. Við skólann er starfrækt frístundin Stjörnuheimar fyrir nemendur í 1. til 4. bekk.
Vatnsendaskóli er staðsettur í fallegu umhverfi við Elliðavatn. Áhersla er lögð á náttúrufræði og umhverfismennt í skólastarfinu, útikennslu og fjölbreytta kennsluhætti. Unnið er samkvæmt uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar. Góður starfsandi er í skólanum og vinnuaðstæður góðar.
Einkunnarorð skólans eru virðing, vinátta, samvinna og skapandi starf.
Vatnsendaskóli óskar eftir frístundaleiðbeinendum í 20%-45% starf eftir hádegi skólaárið 2026-2027. Vinnutími frístundaleiðbeinenda getur hentað fólki sem er í námi.
Frístundaleiðbeinandi tekur virkan þátt í framkvæmd á faglegu starfi í frístund og hefur umsjón með ákveðnum verkefnum í samstarfi við forstöðumann frístundar og skólastjóra. Í skóla og frístund er lögð áhersla á mikilvægi þess að allt starfsfólk hafi hlutverki að gegna í því að styðja við nemendur í námi sem leik.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þátttaka í framkvæmd faglegs frístundastarfs
- Umsjón með verkefnum samkvæmt starfsáætlun og dagskipulagi
- Taka á móti börnum, halda utan um skráningar og miðla upplýsingum til foreldra
- Gæta að öryggi, velferð og líðan barna og leiðbeina þeim í samskiptum, leik og starfi
- Stuðla að sjálfstæði, virkni og þátttöku barna í anda lýðræðis
- Vinna í samstarfi við forstöðumann, stuðningsaðila og aðra aðila
- Aðstoð við síðdegishressingu barna
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun æskileg
- Reynsla af starfi með börnum er æskileg
- Áhugi og ánægja af starfi með börnum
- Góð hæfni í samskiptum og samstarfi
- Frumkvæði, ábyrgðarkennd og sköpunargleði
- Góð íslenskukunnátta
Fríðindi í starfi
- Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
- Íþróttastyrkur
Einstaklingar sem ráðnir eru til starfa í grunnskólum Kópavogs þurfa lögum samkvæmt að undirrita heimild til upplýsingaöflunar úr sakaskrá.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningavef Kópavogs.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Tekið verður mið af jafnréttisáætlun Kópaovgs og jafnréttislögum við ráðningu í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ari Magnús Þorgeirsson, forstöðumaður Stjörnuheima í síma 441 4000 eða netfangið [email protected]
Íslenska






