

Lindaskóli óskar eftir smíðakennara í tímabundið starf
Lindaskóli óskar eftir að ráða jákvæðan og metnaðarfullan einstakling til að sinna smíðakennslu tímabundið fram að jólum 2026.
Lindaskóli er skemmtilegur og lifandi vinnustaður þar sem lögð er áhersla á metnað í námi, vellíðan nemenda og gott samstarf starfsfólks. Við vinnum í teymum og leggjum áherslu á jákvætt starfsumhverfi, samvinnu og faglega þróun. Skólinn státar einnig af öflugri skemmtinefnd sem stuðlar að góðum starfsanda.
Lindaskóli er heildstæður grunnskóli í Kópavogi með um 470 nemendur í 1.–10. bekk og 90 starfsmenn. Þar ríkir góður starfsandi og vinnuaðstæður eru góðar. Lindaskóli leggur rækt við listir og menningu í skólastarfinu og leggur jafnframt áherslu á umhverfismennt. Skólinn er Réttindaskóli UNICEF og leggur áherslu á fjölbreytta kennsluhætti, sköpun og gott samstarf innan skólasamfélagsins.
Gildi Lindaskóla eru Vinátta, Virðing og Viska.
-
Kennsla í smíði samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla.
-
Skipulagning, undirbúningur og framkvæmd kennslu.
-
Að leiðbeina nemendum í verklegri vinnu og efla sköpunargleði þeirra.
-
Að stuðla að öruggu og hvetjandi vinnuumhverfi í smíðastofunni.
-
Að laga kennsluhætti að þörfum og getu fjölbreytts nemendahóps.
-
Samstarf við samstarfsfólk og þátttaka í skólastarfinu.
-
Kennaramenntun og réttindi til kennslu eru kostur.
-
Menntun í smíði eða önnur smíðatengd menntun er æskileg.
-
Reynsla af smíðakennslu eða annarri verklegri kennslu er kostur.
-
Áhugi á skapandi starfi með börnum og unglingum.
-
Frumkvæði, jákvæðni og metnaður í starfi.
-
Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og góð samstarfshæfni.
-
Samviskusemi og stundvísi.
Íslenska










