Heilsuleikskólinn Skógarás
Heilsuleikskólinn Skógarás
Heilsuleikskólinn Skógarás

Deildarstjóri óskast

Heilsuleikskólinn Skógarás er fjögra deilda leikskóli með um 80 börnum. Skólar ehf. er 25 ára gamalt félag sem rekur þrjá aðra heilsuleikskóla í sveitarfélögunum Garðabæ og Kópavogi. Allir leikskólarnir innan vébanda Skóla ehf. starfa í anda Heilsustefnunnar sem kjarnast um heilsu og lífsgæði nemenda, starfsfólks og nærsamfélagsins.

Einkunnarorð okkar er „heilbrigð sál í hraustum líkama“

Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá skólastjórnendum í tölvupósti [email protected] eða í síma 420-2300.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg forysta og dagleg stjórnun deildar.
  • Skipulagning og framkvæmd uppeldis- og menntunarstarfs.
  • Verkstjórn og leiðsögn starfsfólks deildarinnar.
  • Samstarf við foreldra, stjórnendur og fagaðila.
  • Eftirfylgni með velferð, námi og þroska barna.
  • Þátttaka í þróun og umbótum á starfi leikskólans.
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Við leitum að metnaðarfullum einstaklingi sem:

    • Hefur leyfisbréf kennara eða aðra menntun sem nýtist í starfi.
    • Hefur áhuga á að starfa með börnum og stuðla að velferð þeirra og þroska.
    • Býr yfir góðri samskipta- og samstarfshæfni.
    • Sýnir frumkvæði, ábyrgð og sjálfstæði í starfi.
    • Er lausnamiðaður og jákvæður í nálgun sinni.
    • Hefur áhuga á faglegri þróun og þátttöku í áframhaldandi uppbyggingu skólastarfs.
    • Hefur reynslu af leikskólastarfi eða sambærilegri reynslu sem nýtist í starfi.
    • Góð íslenskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Heilsuhvetjandi starfsumhverfi
  • Samgöngustyrkur
  • Viðverustefna
  • Heilsustyrkur
  • Metnaðarfullt starfsumhverfi
  • 3 heilsusamlegar máltíðir á dag
  • 40% afsláttur af tímagjaldi leikskólabarna í leikskólum Reykjanesbæjar (ef við á)
  • vetrarfrí að hausti og vori, jólafrí og páskafrí 
Auglýsing birt4. nóvember 2026
Umsóknarfrestur15. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skógarbraut 932, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar