
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Umsjónarkennari við Grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi
Grunnskóli Borgarfjarðar auglýsir eftir umsjónarkennara á yngsta stigi á Varmalandi
Grunnskóli Borgarfjarðar er þriggja starfsstöðva skóli í Borgarfirði. Starfsstöðvar skólans eru á Hvanneyri þar sem eru 25 nemendur í 1.-5. bekk, á Kleppjárnsreykjum þar sem eru 112 nemendur í 1.-10. bekk og á Varmalandi þar sem eru 23 nemendur í 1.-4. bekk.
Grunnskóli Borgarfjarðar er teymiskennsluskóli þar sem kennarar vinna í teymum með samkennslu tveggja til fjögurra árganga. Skólinn vinnur eftir gildum heilsueflingar og grænfána og er leiðtogaskóli. Nánar um stefnu skólans er á heimasíðunni www.gbf.is
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara.
- Kennaramenntun.
- Reynsla af kennslu í grunnskóla.
- Sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í samskiptum.
- Áhugi og metnaður fyrir að starfa með börnum og ungmennum.
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
- Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði.
- Góð tæknikunnátta og þekking á þeim kerfum sem nýtt eru í skólastarfinu.
- Framtaksemi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt2. nóvember 2026
Umsóknarfrestur16. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Varmaland-skóli 134934, 311 Borgarnes
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Skóla- og frístundaliði í frístundaheimilið Hraunsel - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Íþróttakennari í 3.-10. bekk og/eða umsjónarkennari í 7.-8. bekk
Svalbarðsstrandarhreppur

Umsjónarkennar á yngsta stigi í Vallaskóla - 100% staða
Vallaskóli, Selfossi

Deildarstjóri
Heilsuleikskólinn Urriðaból I

Aðstoðarleikskólastjóri í Heilsuleikskólann Fífusali
Fífusalir

Leikskólakennari í Engjaborg
Leikskólinn Engjaborg

Leikskólakennari í leikskólann Núp
Núpur

Sérkennari eða þroskaþjálfi í Núp
Núpur

Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Kennari í Fossvogsskóla
Fossvogsskóli

Við leitum að dásamlegum samstarfsaðila
Regnboginn

Leikskólakennari óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir