

Íþróttakennari í 3.-10. bekk og/eða umsjónarkennari í 7.-8. bekk
Valsárskóli óskar eftir kennara í 100% starf sem fyrst og út skólaárið. Starfið felur í sér umsjón og stærðfræðikennslu í 7.–8. bekk, stærðfræðikennslu í 9.–10. bekk og íþróttakennslu í 3.–10. bekk.
Möguleiki er á að skipta starfinu milli tveggja kennara, þannig að annar sinni íþróttakennslu en hinn umsjón og kennslu í 7.–8. bekk ásamt stærðfræðikennslu í 9.–10. bekk. Umsækjendur sem hafa áhuga á öðru hvoru starfssviðinu eru því hvattir til að sækja um.
-
Kennsla og umsjón með námshópi, eftir því sem við á.
-
Að stuðla að velferð, framförum og árangri nemenda í samstarfi við foreldra og samstarfsfólk.
-
Að starfa í samræmi við stefnu Valsárskóla.
-
Virk þátttaka í samstarfi og þróun skólastarfs.
-
Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og í samráði við skólastjóra.
-
Leyfisbréf til kennslu.
-
Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum.
-
Þekking á fjölbreyttum kennsluháttum.
-
Reynsla af kennslu á mið- og unglingastigi er kostur.
-
Þekking á og áhugi á stærðfræði- og/eða íþróttakennslu er kostur.
-
Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki.
-
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
-
Stundvísi og samviskusemi.
-
Gott vald á íslensku í ræðu og riti.
Ef ekki fæst kennari með leyfisbréf koma umsækjendur með aðra menntun og reynslu sem nýtist í starfi einnig til greina, í samræmi við gildandi reglur.
Íslenska










